Ég ætla að ná í matarbita svo að þið getið styrkt ykkur áður en þið haldið lengra úr því að þið fóruð um hjá þjóni ykkar.“ Þeir svöruðu: „Gott og vel, gerðu eins og þú hefur sagt.“
Einn þeirra sagði: „Það mun ekki bregðast að ég kem til þín um sama leyti að ári og mun þá Sara kona þín hafa eignast son.“ Þetta heyrði Sara sem stóð í tjalddyrunum að baki hans.
Ég hef kjörið hann til þess að bjóða börnum sínum og niðjum eftir sig að gefa gætur að vegi Drottins og iðka rétt og réttlæti. Mun þá Drottinn láta koma fram við Abraham það sem hann hefur heitið honum.“
Fjarri þér sé að gera slíkt, að deyða hinn réttláta með hinum guðlausa. Fer þá hinum réttláta eins og hinum guðlausa. Fjarri sé það þér. Mun dómari allrar jarðarinnar ekki gera rétt?“
Nú kann fimm að skorta á tölu fimmtíu réttlátra. Ætlarðu þá að tortíma allri borginni vegna þeirra fimm?“ Hann svaraði: „Ég mun ekki tortíma borginni ef ég finn þar fjörutíu og fimm.“
Þá sagði Abraham: „Nú má Drottinn ekki reiðast mér, að ég tek aftur til máls. Vera má að þar finnist ekki nema þrjátíu.“ Hann svaraði: „Ef ég finn þar þrjátíu aðhefst ég ekkert.“
Þá sagði Abraham: „Enn gerist ég svo djarfur að ávarpa Drottin. Vera má að þar finnist ekki nema tuttugu.“ Hann svaraði: „Vegna hinna tuttugu tortími ég ekki borginni.“
Abraham mælti: „Nú má Drottinn ekki reiðast mér þótt ég taki til máls aðeins í þetta eina skipti. Vera má að þar finnist ekki nema tíu.“ Hann svaraði: „Vegna hinna tíu tortími ég ekki borginni.“