Biblían 2007
|
| 1 |
| Þetta er ættartala Esaú, það er Edóms: |
| 2 |
| Esaú tók sér kanverskar eiginkonur sem voru Ada, dóttir Hetítans Elons, og Oholíbama, dóttir Ana, sonar Hívítans Síbeons, |
| 3 |
| og Basmat, dóttir Ísmaels, systur Nebajóts. |
| 4 |
| Ada ól Esaú Elífas, Basmat ól Regúel |
| 5 |
| og Oholíbama ól Jeús, Jaelam og Kóra. Þessir voru synir Esaú sem honum fæddust í Kanaanslandi. |
| 6 |
| Esaú tók konur sínar, syni sína, dætur og allt sitt fólk, hjörð sína og kvikfénað og allt það sem hann hafði eignast í Kanaanslandi og fór frá Jakobi bróður sínum til Seírlands. |
| 7 |
| Eigur þeirra voru meiri en svo að þeir gætu búið á sama stað og landið, er þeir bjuggu í sem útlendingar, bar ekki hjarðir þeirra. |
| 8 |
| Esaú settist að á Seírfjöllum en Esaú er Edóm. |
| 9 |
| Þetta er ættartala Esaú, ættföður Edómíta, á Seírfjöllum. |
| 10 |
| Þetta eru nöfn sona Esaú: Elífas, sonur Ada, konu Esaú, Regúel, sonur Basmat, konu Esaú. |
| 11 |
| Synir Elífasar voru Teman, Ómar, Sefó, Gatam og Kenas. |
| 12 |
| Timna var önnur kona Elífasar, sonar Esaú, og hún ól Elífas Amalek. Þetta eru synir Ada, konu Esaú. |
| 13 |
| Synir Regúels eru þessir: Nahat, Sera, Samma og Missa. Þeir voru synir Basmat, konu Esaú. |
| 14 |
| Synir Esaú og Oholíbama, dóttur Ana Síbeonssonar, voru: Jeús, Jaelam og Kóra. |
| 15 |
| Ættarhöfðingjar meðal niðja Esaú eru: Synir Elífasar, frumgetins sonar Esaú: höfðingjarnir Teman, Ómar, Sefó, Kenas, |
| 16 |
| Kóra, Gatam og Amalek. Þetta eru höfðingjarnir, sem komnir eru frá Elífas í Edómslandi, þeir eru sonarsynir Ada. |
| 17 |
| Synir Regúels Esaúsonar voru: höfðingjarnir Nahat, Sera, Samma og Missa. Þeir eru höfðingjar sem komnir eru frá Regúel í Edómslandi, sonarsynir Basmat, konu Esaú. |
| 18 |
| Synir Oholíbama, konu Esaú, eru: höfðingjarnir Jeús, Jaelam og Kóra. Þeir eru höfðingjar sem komnir eru frá Oholíbama, dóttur Ana, konu Esaú. |
| 19 |
| Þetta eru synir Esaú og höfðingjar þeirra, það er Edóm. |
| 20 |
| Synir Hórítans Seírs, frumbyggjar landsins, eru: Lótan, Sóbal, Síbeon, Ana, |
| 21 |
| Díson, Eser og Dísan. Þeir eru höfðingjar Hórítanna, synir Seírs í Edómslandi. |
| 22 |
| Synir Lótans voru Hórí og Hemam og systir Lótans var Timna. |
| 23 |
| Synir Sóbals eru: Alvan, Manahat, Ebal, Sefó og Ónam. |
| 24 |
| Synir Síbeons eru: Aja og Ana, það er sá Ana sem fann hverina í óbyggðinni er hann gætti asna Síbeons föður síns. |
| 25 |
| Börn Ana eru: Díson og Oholíbama, dóttir Ana. |
| 26 |
| Synir Dísons eru: Hemdan, Esban, Jítran og Keran. |
| 27 |
| Synir Esers eru: Bílhan, Saavan og Akan. |
| 28 |
| Synir Dísans eru: Ús og Aran. |
| 29 |
| Höfðingjar Hórítanna eru: höfðingjarnir Lótan, Sóbal, Síbeon, Ana, |
| 30 |
| Díson, Eser og Dísan. Þeir eru höfðingjar Hórítanna eftir höfðingjum þeirra í Seírlandi. |
| 31 |
| Þeir konungar, sem ríktu í Edómslandi áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum, eru: |
| 32 |
| Bela Beórsson, var konungur í Edóm og hét borg hans Dínhaba. |
| 33 |
| Er Bela dó tók Jóbab, sonur Sera frá Bosra, ríki eftir hann. |
| 34 |
| Er Jóbab dó tók Húsam frá Temanítalandi ríki eftir hann. |
| 35 |
| Er Húsam dó tók Hadad Bedadsson ríki eftir hann. Það var hann sem sigraði Midíaníta á Móabsvöllum og borg hans hét Avít. |
| 36 |
| Er Hadad dó tók Samla frá Masreka ríki eftir hann. |
| 37 |
| Er Samla dó tók Sál frá Rehóbót hjá Efrat ríki eftir hann. |
| 38 |
| Er Sál dó tók Baal Hanan Akbórsson ríki eftir hann. |
| 39 |
| Er Baal Hanan Akbórsson dó tók Hadar ríki eftir hann og hét borg hans Pagú en kona hans Mehetabeel, dóttir Matredar, dóttur Me-Sahabs. |
| 40 |
| Þetta eru nöfn höfðingja þeirra er frá Esaú eru komnir, eftir ættkvíslum þeirra, bústöðum og nöfnum: höfðingjarnir Timna, Alva, Jetet, |
| 41 |
| Oholíbama, Ela, Pínon, |
| 42 |
| Kenas, Teman, höfðinginn Mibsar, |
| 43 |
| Magdíel og Íram. Þeir voru höfðingjar Edómíta, eftir bústöðum þeirra í landinu sem þeir höfðu numið. Esaú er ættfaðir Edómíta. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/genesis/036.mp3
50
36