Jósef gat þá ekki lengur haft stjórn á sér í augsýn allra, sem viðstaddir voru, og kallaði: “Látið alla ganga út frá mér!” Og enginn maður var inni hjá honum, þegar hann sagði bræðrum sínum hver hann væri.
Og Jósef sagði við bræður sína: “Komið hingað til mín!” Og þeir gengu til hans. Hann mælti þá: “Ég er Jósef bróðir yðar, sem þér selduð til Egyptalands.
En látið það nú ekki fá yður hryggðar, og setjið það ekki fyrir yður, að þér hafið selt mig hingað, því að til lífs viðurhalds hefir Guð sent mig hingað á undan yður.
Það er því ekki þér, sem hafið sent mig hingað, heldur Guð. Og hann hefir látið mig verða Faraó sem föður og herra alls húss hans og höfðingja yfir öllu Egyptalandi.
Hraðið yður nú og farið heim til föður míns og segið við hann: ‘Svo segir Jósef sonur þinn: Guð hefir gjört mig að herra alls Egyptalands; kom þú til mín og tef eigi.
En ég skal sjá þér þar fyrir viðurværi, - því að enn verður hallæri í fimm ár -, svo að þú komist ekki í örbirgð, þú og þitt hús og allt, sem þitt er.’
Og föður sínum sendi hann sömuleiðis tíu asna klyfjaða hinum bestu afurðum Egyptalands og tíu ösnur klyfjaðar korni og brauði og vistum handa föður hans til ferðarinnar.
Og þeir færðu honum tíðindin og sögðu: “Jósef er enn á lífi og er höfðingi yfir öllu Egyptalandi.” En hjarta hans komst ekki við, því að hann trúði þeim ekki.
En er þeir báru honum öll orð Jósefs, sem hann hafði við þá talað, og hann sá vagnana, sem Jósef hafði sent til að flytja hann á, þá lifnaði yfir Jakob föður þeirra.