Biblían 2007
|
| 1 |
| Ísrael lagði nú af stað með allt sitt og hann kom til Beerseba þar sem hann færði Guði Ísaks, föður síns, sláturfórn. |
| 2 |
| Þá um nóttina talaði Guð við Ísrael í sýn og sagði: „Jakob, Jakob!“ Hann svaraði: „Hér er ég.“ |
| 3 |
| Guð sagði: „Ég er Guð, Guð föður þíns. Óttast þú ekki að fara til Egyptalands því að þar mun ég gera þig að mikilli þjóð. |
| 4 |
| Ég mun sjálfur fylgja þér til Egyptalands og ég mun flytja þig þaðan aftur og Jósef mun veita þér nábjargirnar.“ |
| 5 |
| Síðan lagði Jakob af stað frá Beerseba og Ísraels synir fluttu Jakob, föður sinn, börn sín og konur á vögnunum sem faraó hafði sent til að flytja hann á. |
| 6 |
| Þeir tóku fénað sinn og annað það sem þeir höfðu eignast í Kanaanslandi og komu til Egyptalands, Jakob og allir niðjar hans með honum. |
| 7 |
| Hann flutti syni sína og sonasyni, dætur sínar og sonadætur og alla niðja sína með sér til Egyptalands. |
| 8 |
| Þetta eru nöfn Ísraels sona sem komu til Egyptalands: Jakob og synir hans: Rúben, frumgetinn sonur Jakobs. |
| 9 |
| Synir Rúbens voru Hanok, Pallú, Hesrón og Karmí. |
| 10 |
| Synir Símeons voru Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Sóar og Sál, sonur kanversku konunnar. |
| 11 |
| Synir Leví voru Gerson, Kahat og Merarí. |
| 12 |
| Synir Júda voru Ger, Ónan, Sela, Peres og Sera. En Ger og Ónan dóu í Kanaanslandi. Synir Peresar voru Hesrón og Hamúl. |
| 13 |
| Synir Íssakars voru Tóla, Púva, Job og Símron. |
| 14 |
| Synir Sebúlons voru Sered, Elon og Jahleel. |
| 15 |
| Þessir voru synir Leu sem hún fæddi Jakobi í Mesópótamíu auk Dínu, dóttur hans. Alls voru synir hans og dætur þrjátíu og þrjú að tölu. |
| 16 |
| Synir Gaðs voru Sífjón, Haggí, Súní, Esbon, Erí, Aródí og Arelí. |
| 17 |
| Synir Assers voru Jimna, Jísva, Jísví, Bría og Sera var systir þeirra. Synir Bría voru Heber og Malkíel. |
| 18 |
| Þessir voru synir Silpu, ambáttarinnar sem Laban hafði gefið Leu, dóttur sinni. Alls ól Silpa Jakobi sextán börn. |
| 19 |
| Synir Rakelar, konu Jakobs, voru Jósef og Benjamín. |
| 20 |
| Í Egyptalandi fæddust Jósef synirnir Manasse og Efraím sem Asenat, dóttir Pótífera, prests í Ón, ól honum. |
| 21 |
| Synir Benjamíns voru Bela, Beker, Asbel, Gera, Naaman, Ehí, Rós, Múppím, Húppím og Ard. |
| 22 |
| Þetta voru synir Rakelar sem hún ól Jakobi, fjórtán talsins. |
| 23 |
| Sonur Dans var Húsín. |
| 24 |
| Synir Naftalí voru Jahseel, Gúní, Jeser og Sillem. |
| 25 |
| Þessir voru synir Bílu, ambáttarinnar sem Laban hafði gefið Rakel, dóttur sinni. Alls ól hún Jakobi sjö syni. |
| 26 |
| Þeir niðjar Jakobs sem komu til Egyptalands voru sextíu og sex auk tengdadætra hans. |
| 27 |
| Af því að Jósef höfðu fæðst tveir synir í Egyptalandi voru ættmenni Jakobs, sem komu til Egyptalands, alls sjötíu að tölu. |
| 28 |
| Jakob hafði sent Júda á undan sér til Jósefs svo að hann gæti vísað honum veginn til Gósen. Þegar þeir komu þangað |
| 29 |
| lét Jósef beita fyrir vagn sinn og fór á móti Ísrael, föður sínum, til Gósen og er þeir hittust þar féll hann um háls honum og grét lengi. |
| 30 |
| Ísrael sagði við Jósef: „Nú er ég búinn undir dauða minn fyrst ég hef séð auglit þitt og veit að þú ert enn á lífi.“ |
| 31 |
| Jósef sagði við bræður sína og annað skyldfólk föður síns: „Nú ætla ég að fara og láta faraó vita að bræður mínir og skyldfólk föður míns, sem var í Kanaanslandi, sé komið til mín og segja við hann: |
| 32 |
| Mennirnir eru hjarðmenn, þeir hafa stundað kvikfjárrækt og hafa tekið sauði sína og nautpening sinn með sér og allt sem þeir eiga. |
| 33 |
| Þegar nú faraó lætur kalla á ykkur og spyr hvaða atvinnu þið stundið, |
| 34 |
| þá skuluð þið svara: Þjónar þínir hafa stundað kvikfjárrækt frá barnæsku allt til þessa dags, bæði við og feður okkar. Þá munuð þið fá að búa í Gósenlandi því að Egyptar hafa andstyggð á öllum hjarðmönnum.“ |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/genesis/046.mp3
50
46