|
| 1 |
|
| Þetta er ættarskrá Adams: Þegar Guð skapaði Adam, gjörði Guð hann sér líkan. |
|
| 2 |
|
| Hann skóp þau mann og konu og blessaði þau og nefndi þau menn, er þau voru sköpuð. |
|
| 3 |
|
| Adam lifði hundrað og þrjátíu ár. Þá gat hann son í líking sinni, eftir sinni mynd, og nefndi hann Set. |
|
| 4 |
|
| Og dagar Adams, eftir að hann gat Set, voru átta hundruð ár, og hann gat sonu og dætur. |
|
| 5 |
|
| Og allir dagar Adams, sem hann lifði, voru níu hundruð og þrjátíu ár. Þá dó hann. |
|
| 6 |
|
| Þegar Set var orðinn hundrað og fimm ára gamall gat hann Enos. |
|
| 7 |
|
| Eftir að Set gat Enos lifði hann átta hundruð og sjö ár og gat sonu og dætur. |
|
| 8 |
|
| Og allir dagar Sets voru níu hundruð og tólf ár, þá andaðist hann. |
|
| 9 |
|
| Enos var níutíu ára, er hann gat Kenan. |
|
| 10 |
|
| Og eftir að Enos gat Kenan lifði hann átta hundruð og fimmtán ár og gat sonu og dætur. |
|
| 11 |
|
| Og allir dagar Enoss voru níu hundruð og fimm ár, þá andaðist hann. |
|
| 12 |
|
| Þá er Kenan var sjötíu ára, gat hann Mahalalel. |
|
| 13 |
|
| Og Kenan lifði, eftir að hann gat Mahalalel, átta hundruð og fjörutíu ár og gat sonu og dætur. |
|
| 14 |
|
| Og allir dagar Kenans urðu níu hundruð og tíu ár, þá andaðist hann. |
|
| 15 |
|
| Er Mahalalel var sextíu og fimm ára, gat hann Jared. |
|
| 16 |
|
| Og Mahalalel lifði, eftir að hann gat Jared, átta hundruð og þrjátíu ár og gat sonu og dætur. |
|
| 17 |
|
| Og allir dagar Mahalalels voru átta hundruð níutíu og fimm ár, þá andaðist hann. |
|
| 18 |
|
| Er Jared var hundrað sextíu og tveggja ára, gat hann Enok. |
|
| 19 |
|
| Og Jared lifði, eftir að hann gat Enok, átta hundruð ár og gat sonu og dætur. |
|
| 20 |
|
| Og allir dagar Jareds voru níu hundruð sextíu og tvö ár, þá andaðist hann. |
|
| 21 |
|
| Er Enok var sextíu og fimm ára, gat hann Metúsala. |
|
| 22 |
|
| Og eftir að Enok gat Metúsala gekk hann með Guði þrjú hundruð ár og gat sonu og dætur. |
|
| 23 |
|
| Og allir dagar Enoks voru þrjú hundruð sextíu og fimm ár. |
|
| 24 |
|
| Og Enok gekk með Guði og hvarf, af því að Guð nam hann burt. |
|
| 25 |
|
| Er Metúsala var hundrað áttatíu og sjö ára, gat hann Lamek. |
|
| 26 |
|
| Og Metúsala lifði, eftir að hann gat Lamek, sjö hundruð áttatíu og tvö ár og gat sonu og dætur. |
|
| 27 |
|
| Og allir dagar Metúsala voru níu hundruð sextíu og níu ár, þá andaðist hann. |
|
| 28 |
|
| Er Lamek var hundrað áttatíu og tveggja ára, gat hann son. |
|
| 29 |
|
| Og hann nefndi hann Nóa og mælti: “Þessi mun hugga oss í erfiði voru og striti handa vorra, er jörðin, sem Drottinn bölvaði, bakar oss.” |
|
| 30 |
|
| Og Lamek lifði, eftir að hann gat Nóa, fimm hundruð níutíu og fimm ár og gat sonu og dætur. |
|
| 31 |
|
| Og allir dagar Lameks voru sjö hundruð sjötíu og sjö ár, þá andaðist hann. |
|
| 32 |
|
| Og er Nói var fimm hundruð ára, gat hann Sem, Kam og Jafet. |
|
|
|
|