Biblían 2007
|
| 1 |
| Nú segir frá því að Absalon, sonur Davíðs, átti fallega systur sem hét Tamar. Amnon, sonur Davíðs, varð ástfanginn af henni. |
| 2 |
| Amnon varð hugsjúkur af þrá til Tamar, systur sinnar. En af því að hún var óspjölluð mey sá Amnon enga leið til að fá vilja sínum framgengt við hana. |
| 3 |
| Amnon átti vin sem hét Jónadab. Hann var sonur Símea, bróður Davíðs. Jónadab var afar ráðsnjall maður. |
| 4 |
| Einhverju sinni spurði hann Amnon: „Hvers vegna ert þú alltaf svona niðurdreginn, konungssonur? Viltu ekki segja mér það?“ Amnon svaraði: „Ég elska Tamar, systur Absalons, bróður míns.“ |
| 5 |
| Þá sagði Jónadab við hann: „Leggstu í rúmið og láttu sem þú sért veikur. Og þegar faðir þinn kemur til þess að vitja um þig skaltu segja við hann: Láttu Tamar, systur mína, koma og gefa mér að eta. Hún á að búa til matinn fyrir augum mínum og síðan et ég úr hendi hennar.“ |
| 6 |
| Amnon lagðist þá og lést vera veikur. Þegar konungur kom að heimsækja hann sagði Amnon: „Láttu Tamar, systur mína, koma og baka tvær kökur fyrir augum mínum og síðan et ég þær úr hendi hennar.“ |
| 7 |
| Davíð sendi mann með þessi boð til Tamar: „Farðu heim til Amnons, bróður þíns, og búðu til mat handa honum.“ |
| 8 |
| Tamar fór þá heim til Amnons, bróður síns, sem lá rúmfastur. Hún tók deig, hnoðaði það og gerði kökur en hann horfði á. Þegar hún var búin að baka kökurnar |
| 9 |
| bar hún þær fyrir hann á pönnunni. Hann vildi ekki eta en sagði: „Látið alla fara út.“ |
| 10 |
| Amnon sagði við Tamar: „Færðu mér matinn inn í svefnherbergið svo að ég geti etið úr hendi þinni.“ Tamar tók þá kökurnar, sem hún hafði bakað, og fór með þær inn í svefnherbergið til Amnons bróður síns. |
| 11 |
| Þegar hún rétti honum kökurnar, svo að hann gæti etið þær, þreif hann í hana og sagði við hana: „Komdu, systir mín, og leggstu með mér.“ |
| 12 |
| Hún svaraði: „Nei, bróðir minn, svívirtu mig ekki því að slíkt er óleyfilegt í Ísrael. Fremdu ekki slíka óhæfu. |
| 13 |
| Og hvað ætti að verða um mig með skömm mína? Þú sjálfur yrðir talinn meðal mestu ómenna Ísraels. Talaðu heldur við konunginn, hann hefur áreiðanlega ekkert á móti því að þú eigir mig.“ |
| 14 |
| En hann hlustaði ekki á hana heldur þreif í hana, neytti aflsmunar og nauðgaði henni. |
| 15 |
| Eftir það fékk Amnon mikla óbeit á henni. Nú hataði hann hana meira en hann hafði elskað hana áður og Amnon sagði við hana: „Farðu á fætur og hafðu þig á burt.“ |
| 16 |
| En hún svaraði honum: „Nei, ef þú rekur mig nú á brott er það enn meira ranglæti en það sem þú gerðir mér.“ En hann hlustaði ekki á hana |
| 17 |
| heldur kallaði á unglinginn, sem þjónaði honum, og sagði: „Losaðu mig við þessa stúlku, rektu hana út á götuna og læstu dyrunum á eftir henni.“ |
| 18 |
| Tamar var í síðum ermalöngum kjól því að dætur konunga klæddust þess konar yfirhöfnum á meðan þær voru óspjallaðar meyjar. Þegar þjónninn hafði rekið hana út á götuna og læst dyrunum á eftir henni |
| 19 |
| jós Tamar mold yfir höfuð sér og reif kjólinn, sem hún var í, lagði hönd á höfuð sér og gekk hljóðandi á brott. |
| 20 |
| Þá sagði Absalon, bróðir hennar, við hana: „Hefur Amnon, bróðir þinn, verið með þér? Segðu engum frá því, systir, því að hann er bróðir þinn. Taktu þetta ekki nærri þér.“ Síðan bjó Tamar ein og yfirgefin í húsi Absalons, bróður síns. |
| 21 |
| Þegar Davíð konungur frétti af þessu varð hann mjög reiður. |
| 22 |
| En Absalon talaði ekki við Amnon eftir þetta, hvorki illt né gott. Hann hataði Amnon vegna þess að hann hafði nauðgað Tamar, systur hans. |
| 23 |
| Tveim árum síðar lét Absalon rýja fé sitt í Baal Hasór við Efraím og bauð þá öllum sonum konungs til veislu. |
| 24 |
| Hann gekk því fyrir konung og sagði: „Nú er verið að rýja fé mitt, þjóns þíns. Mundi konungur vilja koma ásamt hirðmönnum sínum og sitja veislu með þjóni sínum?“ |
| 25 |
| Konungur svaraði Absalon: „Nei, sonur minn. Við getum ekki komið allir. Við viljum ekki íþyngja þér.“ Þó að Absalon legði að honum vildi hann ekki koma, heldur bað hann að fara og kvaddi hann. |
| 26 |
| Þá sagði Absalon: „Má Amnon, bróðir minn, þá ekki fara með okkur?“ En konungur spurði: „Hvers vegna ætti hann að fara með þér?“ |
| 27 |
| Þegar Absalon lagði enn fastar að honum leyfði hann loks að Amnon færi með honum ásamt hinum sonum konungs. |
| 28 |
| Nú gaf Absalon mönnum sínum þessi fyrirmæli: „Fylgist vel með þegar Amnon gerist hreifur af víni. Þegar ég segi ykkur að ráðast á hann skuluð þið drepa hann. Verið óhræddir því að það er ég sem hef skipað ykkur þetta. Verið hughraustir og sýnið karlmennsku.“ |
| 29 |
| Mennirnir gerðu síðan við Amnon það sem Absalon hafði fyrirskipað og spruttu þá allir synir konungs á fætur, stigu á bak múldýrum sínum og flýðu. |
| 30 |
| Á meðan þeir voru á leiðinni barst Davíð þessi orðrómur: „Absalon hefur drepið alla syni konungs. Enginn þeirra komst undan.“ |
| 31 |
| Þá reis konungur á fætur, reif klæði sín og varpaði sér til jarðar. Allir þjónar hans stóðu umhverfis hann og rifu klæði sín. |
| 32 |
| En Jónadab, sonur Símea, bróður Davíðs, sagði: „Herra minn þarf ekki að óttast að þessir ungu konungssynir, allir synir konungs, hafi verið drepnir. Amnon einn er dauður. Frá því að Amnon nauðgaði Tamar hefur svipur Absalons vitað á illt. |
| 33 |
| Herra minn, konungurinn, má ekki taka þetta nærri sér og halda að allir synir konungsins séu dauðir því að Amnon einn er dauður.“ |
| 34 |
| Á meðan þessu fór fram hafði Absalon komist undan. Ungi maðurinn, sem var á verði, kom allt í einu auga á mikinn mannfjölda sem kom eftir veginum til Hórónaím utan í fjallshlíðinni. |
| 35 |
| Þá sagði Jónadab við konunginn: „Þarna koma konungssynirnir. Þetta er eins og þjónn þinn hefur sagt.“ |
| 36 |
| Varla hafði hann sleppt orðinu þegar synir konungs komu og grétu hástöfum. Konungur og þjónar hans tóku þá einnig að gráta hástöfum. |
| 37 |
| En á meðan þessu fór fram hafði Absalon flúið til Talmaí Ammíhúðssonar, konungs í Gesúr. En Davíð syrgði son sinn langa hríð. |
| 38 |
| Þegar Absalon flýði fór hann til Gesúr og dvaldist þar í þrjú ár. |
| 39 |
| En viðhorf konungs til Absalons mildaðist þegar hann hafði sætt sig við dauða Amnons. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/2samuel/013.mp3
24
13