Kíleab var næstelstur en hann eignaðist Davíð með Abígail sem áður var eiginkona Nabals frá Karmel, þriðji Absalon, sonur Maöku dóttur Talmaí, konungs í Gesúr,
Abner reiddist mjög orðum Ísbósets og svaraði: „Er ég hundshaus frá Júda? Enn í dag sýni ég ætt Sáls, föður þíns, bræðrum hans og vinum fullan trúnað. Ég hef ekki selt þig í hendur Davíðs. En nú sakarðu mig um að hafa gerst brotlegur með þessari konu.
Í stað þess að fara sjálfur gerði Abner menn á fund Davíðs með þessa orðsendingu: „Hver á landið? Gerðu við mig sáttmála og ég skal styðja þig til að snúa öllum Ísrael til fylgis við þig.“
„Já,“ svaraði Davíð. „Ég skal gera sáttmála við þig en eins krefst ég af þér: Þú færð ekki að líta mig augum nema þú færir mér Míkal, dóttur Sáls, þegar þú kemur á minn fund.“
Davíð sendi nú menn til Ísbósets, sonar Sáls, og lét segja honum: „Fáðu mér aftur Míkal, konu mína, sem ég greiddi hundrað forhúðir Filistea fyrir í brúðarverð.“
Látið nú verða af því. Drottinn hefur sagt við Davíð: „Fyrir atbeina Davíðs, þjóns míns, mun ég frelsa þjóð mína, Ísrael, úr höndum Filistea og allra annarra fjandmanna hennar.“
Abner talaði einnig við ættbálk Benjamíns. Loks fór hann til Davíðs í Hebron til þess að skýra honum frá því hvað Ísrael og ættbálkur Benjamíns höfðu ákveðið.
Þá sagði Abner við Davíð: „Nú held ég af stað, safna öllum Ísrael saman og stefni honum til herra míns, konungsins. Þá munu þeir gera sáttmála við þig og þú munt ráða yfir öllu því sem hugur þinn girnist.“ Síðan sendi Davíð Abner af stað og hann fór í friði.
Skömmu síðar komu menn Davíðs ásamt Jóab úr ránsferð og höfðu mikið herfang með sér. Abner var þá ekki lengur hjá Davíð í Hebron því að hann hafði sent hann frá sér í friði.
Þegar Abner var kominn aftur til Hebron vék Jóab honum afsíðis inni í borgarhliðinu til að tala við hann undir fjögur augu og stakk hann í kviðinn í hefndarskyni fyrir Asael, bróður sinn, og varð það hans bani.
Þegar Davíð frétti þetta nokkru síðar sagði hann: „Ég er ævinlega saklaus fyrir Drottni, og einnig konungdæmi mitt, af því að hafa úthellt blóði Abners Nerssonar.
Sökin skal koma yfir Jóab og fjölskyldu hans. Ávallt skal einhver af ætt Jóabs þjást af blæðandi sárum, holdsveiki, eða þurfa að styðjast við hækjur, falla fyrir sverði eða svelta.“
Síðan sagði Davíð við Jóab og allt fólkið sem hjá honum var: „Rífið klæði ykkar, gyrðist hærusekk og syrgið Abner.“ Davíð konungur gekk sjálfur á eftir líkbörunum.
Þá komu allir og reyndu að fá Davíð til að neyta matar meðan dagur var en Davíð sór og sagði: „Guð refsi mér nú og síðar ef ég bragða brauð eða eitthvað annað fyrir sólsetur.“
En ég má mín enn of lítils, þó að ég sé smurður konungur, og þessir menn, synir Serúju, eru mér öflugri. Drottinn endurgjaldi illvirkjanum eins og hann á skilið.“