Þegar um langa hríð, á meðan Sál var konungur yfir oss, hefir þú verið fyrir Ísrael, bæði þegar hann lagði af stað í stríð og þegar hann kom heim. Auk þess hefir Drottinn við þig sagt: ‘Þú skalt vera hirðir þjóðar minnar Ísraels, og þú skalt vera höfðingi yfir Ísrael!’”
Allir öldungar Ísraels komu til konungsins í Hebron, og Davíð konungur gjörði við þá sáttmála í Hebron, frammi fyrir augliti Drottins, og þeir smurðu Davíð til konungs yfir Ísrael.
Konungur og menn hans fóru til Jerúsalem í móti Jebúsítum, sem bjuggu í því héraði. Jebúsítar sögðu við Davíð: “Þú munt eigi komast hér inn, heldur munu blindir menn og haltir reka þig burt.” Með því áttu þeir við: “Davíð mun ekki komast hér inn.”
Davíð sagði á þeim degi: “Hver sem vill vinna sigur á Jebúsítum, skal fara um göngin til þess að komast að ‘þeim höltu og blindu’, sem Davíð hatar í sálu sinni.” Þaðan er komið máltækið: “Blindir og haltir komast ekki inn í musterið.”
Þegar Filistar heyrðu að Davíð væri smurður til konungs yfir Ísrael, lögðu þeir af stað að leita Davíðs. Og er Davíð frétti það, fór hann ofan í fjallvígið.
Þá gekk Davíð til frétta við Drottin og sagði: “Á ég að fara móti Filistum? Munt þú gefa þá í hendur mér?” Drottinn svaraði Davíð: “Far þú, því að ég mun vissulega gefa Filista í hendur þér.”
Þá fór Davíð til Baal Perasím. Og Davíð vann þar sigur á þeim og sagði: “Drottinn hefir skolað burt óvinum mínum fyrir mér, eins og þegar vatn ryður sér rás.” Fyrir því var sá staður nefndur Baal Perasím.