Hann hélt af stað ásamt öllum her sínum og hélt til Baala í Júda til þess að sækja þangað örk Drottins sem ber nafn Drottins hersveitanna sem situr í hásæti yfir kerúbunum.
Davíð konungi var sagt: „Drottinn hefur blessað fjölskyldu Óbeðs Edóms og allt, sem hann á, vegna arkar Guðs.“ Davíð fór þá glaður í bragði og flutti örk Guðs úr húsi Óbeðs Edóms upp til borgar Davíðs.
Þegar örk Drottins kom til borgar Davíðs varð Míkal, dóttur Sáls, litið út um glugga. Er hún sá Davíð konung hoppa og dansa frammi fyrir augliti Drottins fyrirleit hún hann í hjarta sínu.
Örk Drottins var nú borin inn og henni komið fyrir á sínum stað í miðju tjaldinu sem Davíð hafði látið setja upp fyrir hana. Því næst færði Davíð brennifórnir og heillafórnir frammi fyrir augliti Drottins.
Loks lét hann úthluta öllu fólkinu, öllum Ísraelsmönnum, körlum og konum, hverjum fyrir sig, einum brauðhleif, einni döðluköku og einni rúsínuköku. Því næst hélt hver og einn heim til sín.
Þegar Davíð kom heim til að heilsa fjölskyldu sinni gekk Míkal, dóttir Sáls, á móti honum og sagði: „En hvað konungur Ísraels bar sig virðulega í dag! Hann beraði sig fyrir framan ambáttir manna sinna eins og skríllinn gerir.“
Davíð svaraði Míkal: „Fyrir augliti Drottins dansaði ég, hans sem tók mig fram yfir föður þinn og alla fjölskyldu hans og hefur gert mig að höfðingja yfir lýð sínum, Ísrael.