„Ég hef hafið þig upp úr duftinu og gert þig að höfðingja yfir þjóð minni, Ísrael, en þú breytir að hætti Jeróbóams og kemur þjóð minni, Ísrael, til að syndga og vekja reiði mína með syndum sínum.
Orð Drottins hafði komið til Basa og ættar hans af munni spámannsins Jehú Hananísonar vegna þeirra verka sem hann hafði framið og ill voru í augum Drottins. Þau höfðu vakið reiði Drottins vegna þess að þau voru eins og verk ættar Jeróbóams og vegna þess að hann hafði tortímt ætt Jeróbóams.
Simrí, embættismaður hans, sem var hershöfðingi yfir helmingi vagnliðsins, gerði samsæri gegn honum. Þegar Ela var í Tirsa og drakk sig ölvaðan í húsi Arsa, hallarráðsmanns í Tirsa,
Jafnskjótt og hann var orðinn konungur og sestur að völdum drap hann alla ætt Basa. Hann lét engan karlmann halda lífi, hvorki skyldmenni hans né vini.
Þetta var vegna allra synda Basa og Ela, sonar hans, þeirra sem þeir drýgðu sjálfir og komu Ísrael til að drýgja svo að þeir vöktu reiði Drottins með fánýtum hjáguðum sínum.
Á tuttugasta og sjöunda stjórnarári Asa Júdakonungs varð Simrí konungur. Hann ríkti sjö daga í Tirsa á meðan herinn sat um Gibbeton sem var eign Filistea.
Sama dag og umsáturshernum bárust fregnir um að Simrí hefði gert samsæri og drepið konunginn gerði allur Ísrael hershöfðingjann Omrí að konungi yfir Ísrael þar í herbúðunum.
Þegar Simrí sá að borgin var fallin gekk hann inn í turn konungshallarinnar, lagði eld að bústað konungsins, brenndi hann yfir sig og lét þar líf sitt.
Þetta varð vegna þeirra synda sem hann hafði drýgt með því að gera það sem illt var í augum Drottins. Hann hafði breytt á sama hátt og Jeróbóam og drýgt sömu syndir og hann með því að koma Ísrael til að syndga.
Um þessar mundir klofnaði Ísraelsþjóðin í tvennt. Helmingur hennar fylgdi Tibní Gínatssyni og vildi gera hann að konungi en hinn helmingurinn fylgdi Omrí.
Hann keypti Samaríufjall af Semer fyrir tvær talentur silfurs og víggirti fjallið og nefndi borgina, sem hann reisti þar, Samaríu eftir Semer, fyrri eiganda fjallsins.
Hann breytti í öllu að hætti Jeróbóams Nebatssonar. Hann drýgði sömu syndir og hann með því að koma Ísrael til að syndga svo að hann vakti reiði Drottins, Guðs Ísraels, með fánýtum hjáguðum sínum.
Akab, sonur Omrí, varð konungur í Ísrael á þrítugasta og áttunda stjórnarári Asa Júdakonungs. Akab, sonur Omrí, ríkti yfir Ísrael í Samaríu í tuttugu og tvö ár.
Hann drýgði ekki aðeins sömu syndir og Jeróbóam Nebatsson heldur tók hann sér Jesebel, dóttur Etbaals konungs í Sídon, að konu. Hóf hann þá að dýrka og tilbiðja Baal.
Akab lét einnig gera Aséru stólpa og gerði enn fleira sem vakti reiði Drottins, Guðs Ísraels. Hann vann verri verk en allir þeir konungar Ísraels sem uppi voru á undan honum.
Á stjórnartímabili hans endurreisti Híel frá Betel Jeríkó. Abríam, elsti sonur hans, lét lífið þegar grunnur borgarinnar var lagður og Segúb, yngsti sonur hans, lét lífið þegar hlið var sett fyrir borgina. Var það í samræmi við orðið sem Drottinn hafði boðað af munni Jósúa Núnssonar.