Salómon mægðist við faraó Egyptalandskonung. Hann kvæntist dóttur faraós og fór með hana til borgar Davíðs. Þar bjó hún uns hann hafði lokið við að byggja sér hús og Drottni musteri og reisa múr umhverfis Jerúsalem.
Salómon elskaði Drottin og sýndi það með því að breyta samkvæmt boðum Davíðs föður síns. Samt færði hann sláturfórnir og reykelsisfórnir á fórnarhæðunum.
Salómon svaraði: „Þú hefur sýnt þjóni þínum, Davíð föður mínum, mikla góðvild. Enda lifði hann fyrir augliti þínu í trúmennsku, réttlæti og hjartans einlægni við þig. Þú hefur ekki látið af þessari miklu góðvild við hann heldur gefið honum son sem nú situr í hásæti hans.
Gefðu því þjóni þínum vilja til að hlýða þér svo að ég geti stjórnað þjóð þinni og greint gott frá illu. Hver getur stjórnað þessari miklu þjóð þinni?“
Þá sagði Guð við hann: „Af því að þú baðst um þetta, en baðst ekki um langlífi þér til handa eða auðlegð eða líf óvina þinna, heldur baðst um vitsmuni til að skynja hvað rétt er í málum manna, þá vil ég veita þér bæn þína.
Salómon vaknaði og var ljóst að þetta hafði verið draumur. Þegar hann kom til Jerúsalem gekk hann fram fyrir sáttmálsörk Drottins og bar fram brennifórnir og heillafórnir. Síðan hélt hann öllum þjónum sínum veislu.
Hún reis þá upp um miðja nótt, tók son minn frá mér á meðan ég, ambátt þín, svaf og lagði hann við brjóst sér en dáinn son sinn lagði hún við brjóst mér.
Ég fór á fætur um morguninn til þess að gefa syni mínum brjóst en þá sá ég að hann var dáinn. En þegar ég skoðaði hann nánar í dagsbirtunni sá ég að þetta var ekki sonur minn sem ég hafði fætt.“
Hin konan sagði: „Nei, það er sonur minn sem er lifandi en þinn sonur er dáinn.“ „Nei, það er sonur þinn sem er dáinn, sonur minn er lifandi,“ svaraði sú fyrri. Þannig rifust þær frammi fyrir konungi.
Þá sagði konungur: „Önnur ykkar segir: Það er sonur minn sem er á lífi en sonur þinn sem er dáinn. En hin segir: Þinn sonur er dáinn en minn er á lífi.“
Þá sagði konan, sem átti lifandi barnið, við konunginn því að móðurástin brann í brjósti hennar: „Æ, herra minn! Fáðu henni barnið sem lifir, láttu ekki deyða það.“ En hin sagði: „Það er best að hvorki ég né þú fáir það. Höggvið barnið í tvennt.“
Er allir Ísraelsmenn heyrðu um dóminn, sem konungurinn hafði kveðið upp, fylltust þeir lotningu fyrir honum því að þeir skildu að guðleg viska bjó í brjósti hans þegar hann kvað upp dóma.