Á fjögur hundruð og áttugasta ári eftir brottför Ísraelsmanna frá Egyptalandi, á fjórða árinu sem Salómon konungur ríkti yfir Ísrael, í mánuðinum sív, það er að segja í öðrum mánuðinum, hóf hann að reisa Drottni hús.
Neðsta hæð viðbyggingarinnar var fimm álnir á breidd, miðhæðin sex álnir á breidd og þriðja hæðin sjö. Hann hafði reist ytri vegg hússins í stöllum, til þess að skaða hann ekki með viðbyggingunni.
Þegar húsið var reist var það byggt úr steinum sem höfðu verið höggnir til í grjótnáminu. Þess vegna heyrðist hvorki hávaði frá hömrum, meitlum né öðrum járnverkfærum meðan á byggingunni stóð.
„Þetta skaltu vita um húsið sem þú ert að reisa: Ef þú breytir eftir boðum mínum, ferð að lögum mínum, hlýðir öllum skipunum mínum og lifir samkvæmt þeim mun ég efna við þig heitið sem ég vann Davíð, föður þínum,
Tuttugu álnum innan við bakvegg hússins reisti hann vegg úr sedrusborðum sem náði frá gólfi upp að þakbjálkum. Innan við hann var innsta herbergið, það er hið allra helgasta.
Hann kom kerúbunum þannig fyrir í miðju herberginu að þeir þöndu út vængi sína. Vængur annars snerti annan vegginn en vængur hins snerti hinn vegginn. Vængirnir, sem sneru að miðju herberginu, snertu hvor annan.
Á báða hurðarvængina, sem voru úr kýprusviði, skar hann út kerúba, pálma og útsprungin blóm og lagði gulli. Hann lét gullið ná yfir kerúbana og pálmana.
og á ellefta árinu, í mánuðinum búl, það er í áttunda mánuðinum, var húsið fullgert að öllu leyti í samræmi við það sem ákveðið hafði verið. Hann reisti það á sjö árum.