Þá skildi Davíð að Drottinn hafði fest hann í sessi sem konung yfir Ísrael því að hann hafði hafið konungdóm hans til vegs vegna þjóðar sinnar, Ísraels.
Þegar Filistear fréttu að Davíð hefði verið smurður til konungs yfir öllum Ísrael héldu allir Filistear upp eftir til þess að taka Davíð til fanga. Um leið og Davíð frétti þetta fór hann á móti þeim.
Þá spurði Davíð Guð: „Á ég að fara gegn Filisteunum? Muntu selja þá mér í hendur?“ Drottinn svaraði honum: „Farðu upp eftir því að ég mun selja þá þér í hendur.“
Þá fór hann upp eftir til Baal Perasím, sigraði þá þar og sagði: „Guð hefur rofið fylkingar fjandmanna minna með hendi minni líkt og vatn sem brýtur sér leið.“ Þess vegna er þessi staður nefndur Baal Perasím, það er Herra rofsins.
Þegar þú heyrir þrusk skóhljóði líkast í hæstu greinum bakatrjánna skaltu bregðast skjótt við því að þá fer Guð á undan þér til þess að sigra her Filistea.“