Biblían 2007
|
| 1 |
| Þegar hann hafði látið byggja sér hús í borg Davíðs lét hann einnig búa örk Guðs stað og reisa tjald fyrir hana. |
| 2 |
| Þá skipaði Davíð svo fyrir: „Enginn má bera örk Guðs nema Levítarnir því að Drottinn hefur valið þá til að bera örk Drottins og til að þjóna sér ævinlega.“ |
| 3 |
| Því næst kallaði Davíð allan Ísrael saman í Jerúsalem til þess að flytja örk Drottins þangað upp eftir á staðinn sem hann hafði búið henni. |
| 4 |
| Davíð stefndi saman niðjum Arons og Levítunum. |
| 5 |
| Af niðjum Kahats kom höfðinginn Úríel og bræður hans, 120 menn. |
| 6 |
| Af niðjum Merarí kom höfðinginn Asaja og bræður hans, 220 menn. |
| 7 |
| Af niðjum Gersons kom höfðinginn Jóel og bræður hans, 130 menn. |
| 8 |
| Af niðjum Elísafans kom höfðinginn Semaja og bræður hans, 200 menn. |
| 9 |
| Af niðjum Hebrons kom höfðinginn Elíel og bræður hans, 80 menn. |
| 10 |
| Af niðjum Ússíels kom höfðinginn Ammínadab og bræður hans, 112 menn. |
| 11 |
| Davíð kallaði til sín prestana Sadók og Abjatar og Levítana Úríel, Asaja, Jóel, Semaja, Elíel og Ammínadab |
| 12 |
| og gaf þeim þessi fyrirmæli: „Þið eruð ættarhöfðingjar Levítanna. Helgið ykkur nú ásamt bræðrum ykkar og flytjið örk Drottins, Guðs Ísraels, til staðarins sem ég hef búið henni. |
| 13 |
| Vegna þess að þið voruð ekki með okkur í fyrsta skiptið hefur Drottinn, Guð okkar, steypt yfir okkur ófarnaði. Við leituðum ekki úrskurðar hans eins og okkur bar.“ |
| 14 |
| Prestarnir og Levítarnir helguðu sig nú til þess að flytja örk Drottins, Guðs Ísraels, upp eftir. |
| 15 |
| Því næst tóku niðjar Leví örk Guðs á axlir sér með burðarstöngum hennar eins og Móse hafði gefið fyrirmæli um að boði Drottins. |
| 16 |
| Davíð skipaði höfðingjum Levítanna að láta ættbræður þeirra, söngvarana, taka sér stöðu með hljóðfæri sín, hörpur, sítara og bjöllur, til þess að leika undir fagnaðarsöngnum. |
| 17 |
| Þá létu þeir Heman Jóelsson og Asaf Berekíason, ættbróður þeirra, taka sér stöðu, enn fremur ættbróður þeirra, Etan Kúsajason af niðjum Merarí. |
| 18 |
| Þeir létu einnig nokkra af bræðrum þeirra úr öðrum þjónustuflokki taka sér stöðu með þeim: Sakaría, Jaasíel, Semíramót, Jehíel, Únní, Elíab, Benaja, Maaseja, Mattitja, Elífala, Mikneja, Óbeð Edóm og Jeíel. |
| 19 |
| Söngvararnir Heman, Asaf og Etan léku á tvö klukkuspil úr eir, |
| 20 |
| Sakaría, Jaasíel, Semíramót, Jehíel, Únní, Elíab, Maaseja og Benaja léku á hörpur að elamítískum hætti. |
| 21 |
| Mattitja, Elífala, Mikneja, Óbeð Edóm, Jeíel og Asasja léku á gígjur að símjónítískum hætti til að stjórna söngnum. |
| 22 |
| Kenanja, höfðingi Levítanna, stjórnaði flutningi tónlistarinnar. Hann stjórnaði flutningnum af því að hann hafði kunnáttu til þess. |
| 23 |
| Berekía og Elkana voru hliðverðir arkarinnar. |
| 24 |
| Prestarnir Sebanja, Jósafat, Netaneel, Amasaí, Sakaría, Benaja og Elíeser blésu í lúðra frammi fyrir örk Guðs. Óbeð Edóm og Jehía voru hliðverðir arkarinnar. |
| 25 |
| Davíð, öldungar Ísraels og foringjar þúsund manna sveitanna fóru nú glaðir í bragði til þess að flytja sáttmálsörk Drottins upp eftir úr húsi Óbeðs Edóms. |
| 26 |
| Sjö nautum og sjö hrútum var fórnað af því að Guð styrkti Levítana sem báru sáttmálsörk Drottins. |
| 27 |
| Davíð bar yfirhöfn frá Byssos, einnig allir Levítarnir sem báru örkina, söngvararnir og Kenanja, stjórnandi söngvaranna, en Davíð bar línhökul. |
| 28 |
| Þannig flutti allur Ísrael sáttmálsörk Drottins upp eftir með fagnaðarópum og hafurshornablæstri, með lúðrablæstri, bjölluhljómi, hörpuleik og gígjuleik. |
| 29 |
| Þegar sáttmálsörk Drottins kom til borgar Davíðs varð Míkal, dóttur Sáls, litið út um glugga. Þegar hún sá Davíð konung hoppa og dansa frammi fyrir augliti Drottins fyrirleit hún hann í hjarta sínu. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/1chronicles/015.mp3
29
15