Davíð vann af honum þúsund vagna, sjö þúsund vagnliða og tuttugu þúsund fótgönguliða. Hann lét skera í sundur hásinarnar á öllum hestunum, nema á hundrað sem hann hélt eftir.
sendi hann Haóram, son sinn, með gripi úr gulli, silfri og eir til Davíðs konungs. Hann lét flytja honum kveðju og heillaóskir vegna þess að hann hafði barist við Hadadeser og sigrað hann en Tóú hafði átt í stríði við Hadadeser.
Davíð helgaði gripina Drottni ásamt silfrinu og gullinu sem hann hafði tekið að herfangi frá öllum þjóðunum, frá Edóm, Móab, Ammónítum, Filisteum og Amalek.