Þar sem fleiri höfðingjar reyndust vera meðal niðja Eleasars en meðal niðja Ítamars var sextán ættarhöfðingjum úthlutað til niðja Eleasars en aðeins átta til niðja Ítamars.
Semaja Netaneelsson, skrifari af ætt Leví, skrifaði þá upp í viðurvist konungs, höfðingjanna, Sadóks prests, Abjatars Ahímelekssonar og ættarhöfðingja prestanna og niðja Leví. Voru tvær fjölskyldur valdar hverju sinni af ætt Eleasars en ein af ætt Ítamars.
Þetta var skipting þjónustu þeirra. Eftir henni áttu þeir að koma til húss Drottins samkvæmt boði því sem þeir höfðu fengið frá Aron, föður sínum, og Drottinn, Guð Ísraels, hafði lagt fyrir hann.
Þeir vörpuðu einnig hlutkesti eins og bræður þeirra, synir Arons, í viðurvist Davíðs konungs, Sadóks og Ahímeleks og ættarhöfðingja prestanna og Levítanna, bæði fjölskyldna hins fremsta þeirra og yngsta bróðurins.