Davíð og herforingjarnir völdu niðja Asafs, Hemans og Jedútúns til að annast lofgjörð að hætti spámanna og leika á gígjur, hörpur og málmgjöll. Hér á eftir fer skrá yfir þá menn sem önnuðust þessa þjónustu:
Af Jedútún: synir Jedútúns, þeir Gedalja, Serí, Jesaja, Símeí, Hasabja og Mattitja, alls sex. Þeir voru undir stjórn Jedútúns, föður síns, sem lék Drottni þökk og lof á gígju að hætti spámanna.
Allir þessir menn voru undir stjórn feðra sinna við sönginn í húsi Drottins. Þeir léku á málmgjöll, hörpur og gígjur við þjónustuna í húsi Guðs að fyrirmælum konungs.
Þeir voru tvö hundruð áttatíu og átta talsins ásamt embættisbræðrum sínum sem hafði verið kennt að syngja Drottni söngva. Allt voru þetta þjálfaðir menn.