Davíð konungur ávarpaði nú allan söfnuðinn: „Salómon, sonur minn, sem Guð hefur valið, er enn ungur og óharðnaður. En verkið er mikið því að ekki er byggingin ætluð mönnum heldur Drottni Guði.
Ég hef því af öllum mætti dregið að húsi Guðs míns gull í gulláhöldin, silfur í silfuráhöldin, eir í eiráhöldin, járn í járnáhöldin og við í tréáhöldin ásamt sjóamsteinum, steina til að setja í umgjarðir, steinlím, mislita steina og alls konar aðra dýra steina og mikið af alabastri.
Af því að ég hef mætur á húsi Guðs míns gef ég hér með einkaeign mína af gulli og silfri til húss Guðs míns, auk alls þess sem ég hef þegar lagt hinu heilaga húsi til:
Þá sýndu ættarhöfðingjarnir og höfðingjar ættbálka Ísraels og höfðingjar þúsund manna og hundrað manna liða og ráðsmenn hinna konunglegu embætta örlæti sitt.
Þeir gáfu fé til að greiða kostnaðinn við vinnuna við hús Guðs: fimm þúsund gulltalentur, tíu þúsund Daríusdali úr gulli, tíu þúsund silfurtalentur, átján þúsund eirtalentur og hundrað þúsund járntalentur.
Þín er tignin, Drottinn, mátturinn, dýrðin, vegsemdin og hátignin því að allt er þitt á himni og jörðu. Drottinn, þitt er konungdæmið og þú ert hafinn yfir allt.
En hver er ég og hver er lýður minn, að vér vorum færir um að gefa slíkar gjafir? Því að allt er frá þér og vér höfum fært þér það sem vér höfum þegið úr hendi þér.
Ég veit, Guð minn, að þú rannsakar hjartað og gleðst yfir hreinskilni. Ég hef gefið þetta allt af heilum hug og fúsu geði. Nú hefur það einnig glatt mig að sjá að lýður þinn, sem hér er saman kominn, hefur fúslega gefið þér gjafir.
Gefðu Salómon, syni mínum, einlægt hjarta svo að hann fylgi boðum þínum, fyrirmælum og lögum og geti þannig framkvæmt allt og reist bygginguna sem ég hef undirbúið.“
Því næst ávarpaði Davíð allan söfnuðinn: „Lofið Drottin, Guð ykkar.“ Allur söfnuðurinn lofaði þá Drottin, Guð feðra sinna. Þeir hneigðu sig og vörpuðu sér niður frammi fyrir Drottni og konungi.
Daginn eftir færðu þeir Drottni sláturfórnir og brennifórnir, þúsund naut, þúsund hrúta og þúsund lömb ásamt þeim dreypifórnum sem við áttu, svo og fjölmargar sláturfórnir fyrir allan Ísrael.
Þennan dag átu þeir og drukku frammi fyrir Drottni og voru mjög glaðir. Því næst gerðu þeir Salómon, son Davíðs, öðru sinni að konungi. Þeir smurðu hann til þjóðhöfðingja Drottins og Sadók til æðsta prests.
Drottinn gerði Salómon mjög voldugan í augum alls Ísraels. Hann veitti konungdómi hans slíka hátign sem enginn konungur yfir Ísrael hafði notið á undan honum.