|
| 1 |
|
| Þessir eru synir Davíðs, er hann eignaðist í Hebron: Ammon, frumgetningurinn, við Akínóam frá Jesreel; annar var Daníel, við Abígail frá Karmel; |
|
| 2 |
|
| hinn þriðji Absalon, sonur Maöku, dóttur Talmaí konungs í Gesúr; hinn fjórði Adónía, sonur Haggítar; |
|
| 3 |
|
| hinn fimmti Sefatja, við Abítal; hinn sjötti Jitream, við Eglu, konu sinni. |
|
| 4 |
|
| Sex fæddust honum í Hebron. Þar ríkti hann sjö ár og sex mánuði, en í Jerúsalem ríkti hann þrjátíu og þrjú ár. |
|
| 5 |
|
| Og þessa eignaðist hann í Jerúsalem: Símea, Sóbab, Natan og Salómon - fjóra alls - við Batsúa Ammíelsdóttur, |
|
| 6 |
|
| enn fremur Jíbhar, Elísama, Elífelet, |
|
| 7 |
|
| Nóga, Nefeg, Jafía, |
|
| 8 |
|
| Elísama, Eljada, Elífelet - níu alls. |
|
| 9 |
|
| Þetta eru allir synir Davíðs, að hjákvennasonum eigi meðtöldum. En systir þeirra var Tamar. |
|
| 10 |
|
| Sonur Salómons var Rehabeam, hans son var Abía, hans son Asa, hans son Jósafat, |
|
| 11 |
|
| hans son Jóram, hans son Ahasía, hans son Jóas, |
|
| 12 |
|
| hans son Amasía, hans son Asaría, hans son Jótam, |
|
| 13 |
|
| hans son Akas, hans son Hiskía, hans son Manasse, |
|
| 14 |
|
| hans son Amón, hans son Jósía. |
|
| 15 |
|
| Og synir Jósía voru: Jóhanan, frumgetningurinn, annar Jójakím, þriðji Sedekía, fjórði Sallúm. |
|
| 16 |
|
| Og synir Jójakíms: Jekonja, sonur hans; hans son var Sedekía. |
|
| 17 |
|
| Synir Jekonja, hins herleidda: Sealtíel, sonur hans, |
|
| 18 |
|
| Malkíram, Pedaja, Seneassar, Jekamja, Hósama og Nedabja. |
|
| 19 |
|
| Synir Pedaja voru: Serúbabel og Símeí, og synir Serúbabels: Mesúllam og Hananja. Systir þeirra var Selómít. |
|
| 20 |
|
| Og enn fremur Hasúba, Óhel, Berekía, Hasadja, Júsab Hesed - fimm alls. |
|
| 21 |
|
| Synir Hananja voru: Pelatja og Jesaja, synir Refaja, synir Arnans, synir Óbadía, synir Sekanja. |
|
| 22 |
|
| Synir Sekanja voru: Semaja, og synir Semaja: Hattúa, Jígeal, Baría, Nearja og Safat - sex alls. |
|
| 23 |
|
| Synir Nearja voru: Eljóenaí, Hiskía, Asríkam - þrír alls. |
|
| 24 |
|
| En synir Eljóenaí voru: Hódavja, Eljasíb, Pelaja, Akkúb, Jóhanan, Delaja, Ananí - sjö alls. |
|
|
|
|