Rúben var frumburður Ísraels. Hann var frumburðurinn. En þar sem hann hafði vanhelgað hvílu föður síns var frumburðarrétturinn gefinn sonum Jósefs, sonar Ísraels. Hann var þó ekki skráður sem frumburður í ættartölum
Á dögum Sáls áttu þeir í ófriði við Hagríta. Þegar þeir höfðu fallið þeim í hendur settust þeir að í tjöldum þeirra sem voru um allan austurhluta Gíleaðs.
Þeir af sonum Rúbens og Gaðs og hálfum ættbálki Manasse, sem voru hermenn, báru skjöld og sverð og spenntu boga og voru þjálfaðir í hernaði. Þeir voru fjörutíu og fjögur þúsund sex hundruð og sjötíu vopnfærir menn.
Þeir hlutu hjálp og Hagrítar og allir bandamenn þeirra voru seldir þeim í hendur. Þar sem þeir höfðu hrópað til Guðs á hjálp á meðan bardaginn stóð bænheyrði hann þá af því að þeir treystu honum.
Þeir tóku með sér hjarðir Hagríta sem herfang, fimmtíu þúsund úlfalda, tvö hundruð og fimmtíu þúsund sauðfjár og tvö þúsund asna. Einnig tóku þeir hundrað þúsund manns.
Þetta voru höfðingjar ætta þeirra: Efer og Jíseí og Elíel og Asríel og Jeremía og Hódavja og Jahdíel. Þeir voru miklir kappar og nafnkunnir menn, höfðingjar í ættum sínum.
Þá blés Guð Ísraels því í brjóst Púl Assýríukonungi, það er Tílgat Pilneser, að flytja niðja Rúbens, Gaðs og hálfan ættbálk Manasse í útlegð. Hann flutti þá til Hala og Habór og Hara og Gósanfljóts. Þar hafa þeir verið allt til þessa dags.