Abía hóf stríðið með her þjálfaðra stríðsmanna, fjögur hundruð þúsund manna einvalaliði. Jeróbóam fylkti gegn honum átta hundruð þúsund manna úrvalsliði, þjálfuðum stríðsmönnum.
Lausingjar og hrakmenni söfnuðust að honum og þeir urðu Rehabeam, syni Salómons, öflugri. Rehabeam var ungur og óharðnaður og gat ekki veitt þeim viðnám.
En nú ætlið þið að ráðast gegn konungdómi Drottins, sem er í hendi niðja Davíðs, af því að þið eruð fjölmennir og gullkálfarnir, sem Jeróbóam gerði að guðum ykkar, eru hjá ykkur.
Hafið þið ekki rekið burt presta Drottins, niðja Arons, og Levítana og skipað ykkur presta sjálfir eins og þjóðir í öðrum löndum? Sérhver, sem kom með ungt naut og sjö geithafra til þess að láta setja sig í prestsembætti, varð prestur falsguðanna.
Morgun eftir morgun og kvöld eftir kvöld færa þeir Drottni brennifórnir og ilmandi reykelsi og raða brauðum á hið hreina borð. Þeir kveikja á lömpum gullljósastikunnar kvöld eftir kvöld. Því að við fylgjum fyrirmælum Drottins, Guðs okkar, en þið hafið snúið baki við honum.
Takið eftir: Hinn sanni Guð er með okkur í broddi fylkingar. Prestar hans eru hér með lúðrana, reiðubúnir að blása til atlögu. Ísraelsmenn, berjist ekki gegn Drottni, Guði feðra ykkar, því að ykkur mun ekkert verða ágengt.“
Jeróbóam hafði látið hluta liðs síns fara umhverfis Júdamenn og koma aftan að þeim. Meginherinn stóð því frammi fyrir Júdamönnum en launsátursliðið að baki þeim.
Abía var lagður til hvíldar hjá feðrum sínum. Hann var grafinn í borg Davíðs. Asa, sonur hans, varð konungur eftir hann. Friður ríkti í landinu tíu ár á stjórnartíma hans.