Akas var tuttugu ára þegar hann varð konungur og hann ríkti sextán ár í Jerúsalem. Hann gerði ekki það sem rétt var í augum Drottins eins og Davíð, forfaðir hans, hafði gert.
Það var hann sem færði brennifórnir í Hinnomssonardal og lét syni sína ganga gegnum eld að viðurstyggilegum hætti þeirra þjóða sem Drottinn hafði hrakið í burtu undan Ísraelsmönnum.
Drottinn, Guð hans, seldi hann því í hendur konungi Aramea. Þeir unnu sigur á honum og tóku fjölmarga menn hans til fanga og fluttu þá til Damaskus. Drottinn seldi hann einnig í hendur Ísraelskonungi og hann gersigraði þá.
Peka Remaljason felldi hundrað og tuttugu þúsund menn á einum degi í Júda. Það voru allt hraustir menn en þetta varð vegna þess að þeir höfðu yfirgefið Drottin, Guð feðra sinna.
Þar bjó spámaður Drottins að nafni Ódeð. Hann gekk á móti hernum, sem var að koma heim til Samaríu, og sagði: „Drottinn, Guð feðra ykkar, reiddist Júda. Þess vegna hefur hann selt þá ykkur í hendur. En þið hafið fellt þá af þeirri heift sem hrópar til himins.
Nú ætlið þið að kúga Júdamenn og íbúa Jerúsalem með því að gera þá að þrælum ykkar og ambáttum. En eruð þið sjálfir ekki orðnir sekir gagnvart Drottni, Guði ykkar?
Því næst gengu nokkrir af leiðtogum Efraímíta á móti þeim sem voru að koma heim úr herförinni. Það voru Asarja Jóhanansson, Berekía Mesillemótsson, Hiskía Sallúmsson og Amasa Hadlaíson.
Þeir ávörpuðu þá og sögðu: „Komið ekki hingað með fangana. Með því munuð þið auka við sekt okkar og synd gegn Drottni en sekt okkar er þegar mikil og heiftarreiði gegn Ísrael.“
Síðan gengu þeir menn fram sem höfðu verið valdir til þess með nafnakalli og tóku fangana að sér. Þeir klæddu þá sem voru naktir, gáfu þeim klæði og skó af herfanginu, gáfu þeim að eta og drekka og smurðu þá smyrslum. Því næst fluttu þeir alla, sem ekki gátu gengið, á ösnum til Jeríkó, pálmaborgarinnar, til ættbræðra þeirra og sneru síðan aftur heim til Samaríu.
Filistear höfðu á sama tíma ráðist á borgirnar á láglendinu og í þeim hluta Negeb sem heyrir Júda til. Þeir höfðu tekið Bet Semes, Ajalon, Gederót og Sókó ásamt þorpunum umhverfis, Timna ásamt þorpunum umhverfis og Gimsó ásamt þorpunum umhverfis, og sest að í þessum borgum.
Hann færði guðunum í Damaskus, sem höfðu sigrað hann, sláturfórnir og sagði: „Guðir Arameakonunga hafa hjálpað þeim. Nú ætla ég að færa þeim sláturfórnir, þá munu þeir einnig hjálpa mér.“ En þeir urðu honum aðeins til falls og öllum Ísrael.
Akas lét safna saman öllum áhöldum húss Guðs. Því næst lét hann brjóta þau, loka hliðum húss Drottins og gera ölturu handa sér við hvert horn í Jerúsalem.