Þegar allir Ísraelsmenn sáu eldinn koma ofan og dýrð Drottins yfir húsinu vörpuðu þeir sér á steinstéttina og hneigðu ásjónu sína til jarðar, sýndu Drottni lotningu og lofuðu hann: „Því að hann er góður, miskunn hans varir að eilífu.“
Prestarnir stóðu á sínum stað og einnig Levítarnir sem léku á hljóðfæri Drottins. Davíð konungur hafði látið gera þessi hljóðfæri til þess að lofa Drottin með orðunum: „Því að miskunn hans varir að eilífu.“ Þegar Levítarnir fluttu lofgjörð Davíðs með þeim stóðu prestarnir andspænis þeim og þeyttu lúðra en allur Ísrael stóð á meðan.
Salómon helgaði miðhluta forgarðsins fyrir framan hús Drottins. Hann fórnaði þar brennifórnunum og feiti heillafórnarinnar því að eiraltarið, sem Salómon hafði látið gera, rúmaði ekki brennifórnina, kornfórnina og feiti heillafórnarinnar.
Að þessu sinni hélt Salómon hátíðina í sjö daga ásamt öllum Ísrael sem var mjög mikill söfnuður frá svæðinu frá Lebó Hamat að landamæralæk Egyptalands.
Á tuttugasta og þriðja degi sjöunda mánaðarins sendi konungur fólkið til tjalda sinna glatt og ánægt vegna allra velgjörða Drottins við Davíð og Salómon og eignarlýð sinn, Ísrael.
og þjóð mín, sem nafn mitt hefur verið hrópað yfir, auðmýkir sig, biður, leitar auglits míns og lætur af illri breytni sinni, mun ég heyra á himninum, fyrirgefa synd hennar og græða upp land hennar.
mun ég uppræta ykkur úr landinu sem ég hef gefið ykkur. Húsið, sem ég hef helgað nafni mínu, mun ég fjarlægja frá augliti mínu og ég mun láta það verða að háði og spotti meðal allra þjóða.
Hverjum þeim sem gengur fram hjá þessu háreista húsi mun blöskra og hann mun spyrja: Hvers vegna hefur Drottinn farið svona með þetta land og þetta hús?
Og svarið verður: Af því að íbúarnir yfirgáfu Drottin, Guð feðra sinna, sem leiddi þá út úr Egyptalandi. Þeir bundust öðrum guðum, sýndu þeim lotningu og þjónuðu þeim. Þess vegna hefur hann sent allt þetta böl yfir þá.“