Á fyrsta stjórnarári Kýrusar konungs gaf Kýrus konungur svohljóðandi fyrirmæli: Hvað hús Guðs í Jerúsalem snertir þá skal það endurreist svo að þar verði staður til fórna. Byggt skal á gamla grunninum. Húsið skal verða sextíu álnir á hæð og sextíu álnir á breidd.
Enn fremur skal gull- og silfuráhöldum úr húsi Guðs skilað en þau tók Nebúkadnesar úr musterinu í Jerúsalem og flutti til Babýlonar. Þau skal flytja á sinn fyrri stað í musterinu í Jerúsalem og koma fyrir í húsi Guðs.“
Hér með gef ég fyrirmæli um hvernig þið eigið að hjálpa öldungum Gyðinga við byggingu þessa húss Guðs. Þessum mönnum skal greiða kostnaðinn að fullu af tekjum konungs frá skattlandinu handan fljóts svo að verkið tefjist ekki.
Á hverjum degi skal undanbragðalaust færa þeim eins mörg ungneyti, hrúta og lömb og þarf til að færa Guði himinsins að brennifórn og prestarnir í Jerúsalem mæla fyrir um. Auk þess skal láta þeim í té hveiti, salt, vín og olíu
Loks gef ég þessi fyrirmæli: Hver sá maður, sem breytir gegn þessari tilskipun, skal negldur á bjálka sem rifinn hefur verið úr hans eigin húsi og hús hans skal lagt í rúst vegna þessa afbrots.
En sá Guð, sem lætur nafn sitt búa á þessum stað, steypi hverjum þeim konungi og þjóð sem tekur sér fyrir hendur að breyta gegn þessu boði og eyða þessu húsi Guðs í Jerúsalem. Ég, Daríus, hef gefið þessa skipun, henni skal gaumgæfilega framfylgt.“
Öldungar Gyðinga héldu byggingunni áfram og sóttist verkið vel vegna spámannsstarfs Haggaí spámanns og Sakaría Iddósonar. Tókst þeim að ljúka byggingunni samkvæmt fyrirmælum frá Guði Ísraels og tilskipunum Kýrusar og Daríusar og Artaxerxesar Persakonunga.
Við vígslu húss Guðs fórnuðu þeir hundrað nautum, tvö hundruð hrútum og fjögur hundruð lömbum. Að auki færðu þeir tólf geithafra í syndafórn fyrir allan Ísrael, jafnmarga ættbálkum Ísraels.
Prestarnir og Levítarnir höfðu hreinsað sig, allir sem einn. Allir voru þeir nú hreinir og slátruðu því páskalambinu fyrir alla sem voru komnir, fyrir embættisbræður sína, prestana, og sjálfa sig.
Síðan neyttu allir Ísraelsmenn, sem voru komnir heim úr útlegðinni, páskalambsins ásamt öllum sem höfðu greint sig frá óhreinleika þjóðanna í landinu og gengið til liðs við Ísraelsmenn til þess að leita Drottins, Guðs Ísraels.
Þeir héldu einnig hátíð hinna ósýrðu brauða í sjö daga með fögnuði því að Drottinn hafði glatt þá með því að snúa hug Assýríukonungs til þeirra svo að hann studdi starf þeirra að húsi Guðs, Ísraels Guðs.