Biblían 2007
|
| 1 |
| Leiðtogar fólksins settust að í Jerúsalem. Aðrir vörpuðu hlutkesti til að fá tíunda hvern mann til að setjast að í Jerúsalem, hinni heilögu borg. Níu tíundu voru um kyrrt í öðrum borgum |
| 2 |
| og fólkið blessaði alla þá menn sem af fúsum vilja settust að í Jerúsalem. |
| 3 |
| Þetta eru þeir leiðtogar skattlandsins sem bjuggu í Jerúsalem. Í borgunum í Júda bjó hver maður á sinni eign í heimaborg sinni: Ísraelsmenn, prestar, Levítar, musterisþjónar og niðjar þræla Salómons. |
| 4 |
| Í Jerúsalem bjuggu af niðjum Júda og Benjamíns: Af niðjum Júda: Ataja Ússíason, Sakaríasonar, Amarjasonar, Sefatjasonar, Mahalaleelssonar sem var niðji Peresar, |
| 5 |
| enn fremur Maaseja Barúksson, Kol-Hósesonar, Hasajasonar, Adajasonar, Jójaríbssonar, Sakaríasonar sem var afkomandi Sela. |
| 6 |
| Niðjar Peresar, sem bjuggu í Jerúsalem, voru alls fjögur hundruð sextíu og átta vopnfærir menn. |
| 7 |
| Niðjar Benjamíns voru: Sallú Mesúllamsson, Jóedssonar, Pedajasonar, Kólajasonar, Maasejasonar, Ítíelssonar, Jesajasonar |
| 8 |
| og á eftir honum Gabbaí Sallaí, alls níu hundruð tuttugu og átta vopnfærir menn. |
| 9 |
| Jóel Síkríson var foringi þeirra og Júda Hasnúason næstæðstur yfir borginni. |
| 10 |
| Af prestunum: Jedaja, Jójaríb, Jakín, |
| 11 |
| Seraja Hilkíason, Mesúllamssonar, Sadókssonar, Merajótssonar, Ahítúbssonar, höfðingi húss Guðs, |
| 12 |
| og embættisbræður þeirra sem veittu þjónustu í húsinu, alls átta hundruð tuttugu og tveir menn. Enn fremur Adaja Jeróhamsson, Pelaljasonar, Amsísonar, Sakaríasonar, Pashúrssonar, Malkíasonar |
| 13 |
| og bræður hans, tvö hundruð fjörutíu og tveir ættarhöfðingjar, og Amassaí Asareelsson, Ahasísonar, Mesillemótssonar, Immerssonar |
| 14 |
| og bræður hans, hundrað tuttugu og átta vopnfærir menn. Sabdíel Haggedólímsson var foringi þeirra. |
| 15 |
| Af Levítunum: Semaja Hassúbsson, Asríkamssonar, Hasabjasonar, Búnnísonar. |
| 16 |
| Sabbetaí og Jósabad voru þeir af leiðtogum Levítanna sem stjórnuðu þjónustunni við hús Guðs utanhúss |
| 17 |
| og Mattanja Míkason, Sabdísonar, Asafssonar, stjórnaði lofsöngnum og var forsöngvari þakkarsálmsins við bænagjörðina, Bakbúkja, sem var næstæðstur embættisbræðra sinna, og Abda Sammúason, Galalssonar, Jedútúnssonar. |
| 18 |
| Levítarnir í hinni heilögu borg voru alls tvö hundruð áttatíu og fjórir. |
| 19 |
| Hliðverðirnir: Akkúb, Talmón og embættisbræður þeirra sem gættu hliðanna, alls hundrað sjötíu og tveir menn. |
| 20 |
| Aðrir Ísraelsmenn, prestarnir og Levítarnir, bjuggu í hinum borgunum í Júda, hver á sinni eign. |
| 21 |
| Musterisþjónarnir bjuggu á Ófel og voru Síha og Gispa yfir þeim. |
| 22 |
| Ússí var foringi Levítanna í Jerúsalem. Hann var sonur Baní Hasabjasonar, Mattanjasonar, Míkasonar, einn Asafsniðja, en þeir áttu að syngja við guðsþjónustuna í húsi Guðs. |
| 23 |
| Um þá gilti konungleg tilskipun og ákveðin regla um hvað söngvararnir áttu að syngja á hverjum degi. |
| 24 |
| Petaja Mesesabeelsson, afkomandi Sera Júdasonar, var konungi til aðstoðar í öllu sem þjóðinni viðkom. |
| 25 |
| Í bæjunum og á sléttunum umhverfis bjuggu ýmsir af niðjum Júda: í Kirjat Arba og þorpum hennar, í Díbon og þorpum hennar, í Jekabeel og þorpum hennar, |
| 26 |
| í Jesúa, Mólada og Bet Pelet, |
| 27 |
| í Hasar Súal, í Beerseba og þorpum hennar, |
| 28 |
| í Siklag og Mekóna og þorpum hennar, |
| 29 |
| í En Rimmon, Sorea, Jarmút, |
| 30 |
| Sanóa, Adúllam og þorpum hennar, í Lakís og á sléttum hennar og í Aseka og þorpum hennar. Þannig komu þeir sér fyrir á svæðinu frá Beerseba að Hinnomssonardal. |
| 31 |
| Niðjar Benjamíns bjuggu í Geba, Mikmas og Aja, einnig í Betel og þorpunum þar í kring, |
| 32 |
| í Anatót, Nób, Ananja, |
| 33 |
| Hasór, Rama, Gittaím, |
| 34 |
| Hadíd, Sebóím, Neballat, |
| 35 |
| Lód og Ónó, í Smiðadal. |
| 36 |
| Nokkrir af flokkum Levítanna í Júda fluttu til Benjamín. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/nehemiah/011.mp3
13
11