og hafði útbúið handa honum stórt herbergi. Þar hafði áður verið geymt mjöl til kornfórnar, reykelsi og áhöld, einnig hin lögbundnu afgjöld af korni, víni og olíu til Levítanna, söngvaranna og hliðvarðanna og greiðslur til prestanna.
Ég var ekki í Jerúsalem þegar allt þetta gerðist því að á þrítugasta og öðru stjórnarári Artaxerxesar Babýloníukonungs hafði ég farið til konungs. En að nokkrum tíma liðnum beiddist ég orlofs af konungi.
Ég komst einnig að því að framlög til Levítanna höfðu ekki verið innt af hendi og að Levítar og söngvarar, sem gegndu þjónustu, hefðu hrökklast til jarða sinna.
og ég skipaði Selemja prest, Sadók fræðimann og Pedaja, einn af Levítunum, yfir birgðageymslurnar. Þeim til aðstoðar skipaði ég Hanan Sakkúrsson, Mattanjasonar. Þeir voru taldir traustir menn og þeim bar að skipta tíundinni á meðal starfsbræðra sinna.
Um þessar mundir sá ég fólk troða vínþrær á hvíldardegi í Júda. Einnig sá ég fólk hirða korn og klyfja asna. Það flutti einnig vín, vínber, fíkjur og alls kyns vörur til Jerúsalem á hvíldardegi en ég varaði það við að selja matarbirgðir sínar á þessum degi.
Var það ekki þetta sem feður ykkar gerðu svo að Guð okkar sendi þessa ógæfu yfir okkur og þessa borg? Nú ætlið þið að kalla enn meiri reiði yfir Ísrael með því að vanhelga hvíldardaginn.“
Þegar skuggar borgarhliða Jerúsalem lengdust við upphaf hvíldardagsins skipaði ég að hliðunum skyldi lokað. Eins mælti ég fyrir um að þau skyldu ekki opnuð fyrr en við lok hvíldardagsins. Jafnframt setti ég nokkra af mönnum mínum á vörð við hliðin svo að enginn flutningur færi um þau á hvíldardeginum.
En ég ávítaði þá og sagði: „Hvers vegna látið þið fyrirberast úti fyrir múrnum að næturlagi? Ef þið gerið það aftur læt ég leggja hendur á ykkur.“ Upp frá því komu þeir ekki aftur á hvíldardegi.
Þá skipaði ég Levítunum að þeir skyldu hreinsa sig og koma til að standa vörð við hliðin svo að helgi hvíldardagsins yrði virt. Guð minn, minnstu mín einnig vegna þessa. Vertu mér miskunnsamur sakir þinnar miklu gæsku.
Ég ávítaði þá og bölvaði þeim, sló nokkra þeirra og hárreytti þá og særði þá við Guð: „Þið megið hvorki gefa dætur ykkar sonum þeirra né taka dætur þeirra handa sonum ykkar eða sjálfum ykkur að eiginkonum.
Var það ekki vegna slíkra kvenna sem Salómon, konungur Ísraels, syndgaði? Meðal allra hinna mörgu þjóða var enginn konungur hans jafningi. Hann var elskaður af Guði sínum og þess vegna gerði Guð hann að konungi yfir öllum Ísrael en hinar útlendu konur gátu leitt jafnvel hann til syndar.