Nú fréttu Sanballat, Tobía, Arabinn Gesem og aðrir fjandmenn okkar að ég hefði endurreist múrinn og að engin skörð væru lengur í honum. Þá hafði ég að vísu ekki enn komið vængjahurðum fyrir í hliðunum.
og í því stóð: „Sá orðrómur gengur meðal annarra þjóða, og Gasmú er sama sinnis, að þú og Gyðingarnir hyggið á uppreisn. Þú sért að endurreisa múrinn og ætlir að verða konungur þeirra.
Þú átt einnig að hafa fengið spámenn til að hrópa um þig í Jerúsalem: Það er kominn konungur í Júda. Nú berst konungi þetta til eyrna. Komdu því svo að við getum átt fund saman.“
Þeir ætluðu allir að hræða okkur og hugsuðu með sér: „Þá fallast þeim hendur svo að þeir hætta við verkið og ljúka því ekki.“ En þá tók ég til hendinni svo um munaði.
Einhverju sinni kom ég í hús Semaja Delajasonar, Mehetabeelssonar, sem var þar í haldi. Hann sagði: „Við skulum hittast í musterissalnum í húsi Guðs. Við skulum loka dyrum musterisins því að menn koma til að drepa þig. Þeir koma að næturlagi til að drepa þig.“
Hann hafði verið keyptur til þess að ég yrði hræddur og hegðaði mér samkvæmt því og syndgaði. Með þessu átti að koma á mig illu orði og ég að verða mér til skammar.
Þegar allir fjandmenn okkar fréttu það urðu þjóðirnar, sem bjuggu umhverfis, skelfingu lostnar. Sjálfstraust þeirra minnkaði mjög þar sem þær urðu að viðurkenna að verkið hafði verið unnið með hjálp frá Guði okkar.