Ég gaf þeim þessi fyrirmæli: „Ekki skal ljúka upp hliðum Jerúsalem fyrr en sól er komin hátt á loft og meðan hún er enn á lofti skal hliðunum lokað og slagbrandar settir fyrir. Enn fremur skal koma á fót varðsveitum Jerúsalembúa. Hver og einn skal standa vörð á sinni varðstöð við eigið hús.“
Þá blés Guð minn mér því í brjóst að kalla saman aðalsmennina, embættismennina og almenning til skrásetningar eftir fjölskyldum þeirra. Ég fann skrá yfir fjölskyldur þeirra sem fyrst höfðu haldið heim og þar var skráð:
Þetta eru þeir íbúar skattlandsins Júda sem sneru heim aftur úr útlegðinni sem þeir voru fluttir í. Nebúkadnesar Babýloníukonungur hafði flutt þá brott en þeir sneru nú aftur til Jerúsalem og Júda, hver til sinnar borgar.
Þetta eru þeir sem komu með Serúbabel: Jósúa, Nehemía, Asarja, Raamja, Nahamaní, Mordekaí, Bilsan, Misperet, Bigvaí, Nehúm og Bagana. Þetta er fjöldi karlmanna af Ísraelsþjóð:
Auk þess þessir af prestunum: niðjar Hobaja, niðjar Kós og niðjar Barsillaí en hann hafði kvænst einni af dætrum Barsillaí frá Gíleað og tekið sér nafn hans.
Prestarnir, Levítarnir, hliðverðirnir, söngvararnir, ýmsir almennir borgarar, musterisþjónarnir og allir Ísraelsmenn settust að í borgum sínum. Ísraelsmenn höfðu sest að í borgum sínum þegar sjöundi mánuðurinn hófst.