×

Biblían 2007

JOBSBÓK 11

1
Sófar frá Naama svaraði og sagði:
2
Skal orðaflaumnum ekki svarað eða á sá málóði að teljast hafa rétt fyrir sér?
3
Á fleipur þitt að gera menn orðlausa svo að þú getir spottað án þess að nokkur geri þér skömm?
4
Þú segir: „Boðskapur minn er skýr og ég hef verið hreinn í augum þínum.“
5
Ég vildi óska að Guð talaði, lyki upp vörum sínum gegn þér
6
og skýrði þér frá leyndardómum spekinnar sem er jafngildi kraftaverka. Þá mundirðu viðurkenna að þín vegna hefur Guð gleymt ýmsum syndum þínum.
7
Nærðu til botns í djúpi Guðs eða að ystu mörkum Hins almáttka?
8
Þau liggja hærra himni, hverju færðu áorkað þar? Dýpra en undirheimar, hvað færð þú vitað?
9
Þau eru lengri en jörðin mælist, víðari en hafið.
10
Ef hann fer um og tekur fanga eða stefnir mönnum fyrir rétt, hver fær þá aftrað honum?
11
Hann þekkir þá einskisverðu, sér ranglæti og gefur því gætur.
12
Ef heimskur maður verður skynsamur getur villiasni eins fæðst sem maður.
13
Ef þú undirbýrð hjarta þitt og breiðir út lófa þína til hans,
14
− ef misgjörð er í hendi þinni, þá fjarlæg hana og lát eigi órétt búa í tjöldum þínum −
15
já, þá munt þú flekklaus hefja höfuð þitt, munt standa fastur og eigi þurfa að óttast.
16
Þá gleymir þú þjáningu þinni, minnist hennar eins og vatns sem runnið hefur hjá
17
og lífið verður bjartara en hádegi og myrkrið verður sem morgunn.
18
Þú verður öruggur því að enn er von, nýtur verndar og sefur óhultur.
19
Þú munt hvílast án þess að nokkur rífi þig upp og margir reyna að koma sér í mjúkinn hjá þér.
20
En augu guðlausra daprast, þeir eiga sér ekkert hæli og eina von þeirra er að gefa upp andann.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar