|
| 1 |
|
| Allt þetta sá ég með eigin augum og heyrði með eigin eyrum og skildi, |
|
| 2 |
|
| það sem þér vitið veit ég einnig og stend yður ekki að baki. |
|
| 3 |
|
| En ég ætla að tala við Hinn almáttka, ég ætla að verja mál mitt frammi fyrir Guði. |
|
| 4 |
|
| En þér hyljið sannleikann lygi og eruð allir ónýtir læknar. |
|
| 5 |
|
| Óskandi væri að þér þegðuð, það mætti meta yður til visku. |
|
| 6 |
|
| Hlýðið nú á vörn mína, hlustið á rökin af vörum mínum. |
|
| 7 |
|
| Ætlið þér að verja Guð með rangfærslum, svara fyrir hann með lygi? |
|
| 8 |
|
| Viljið þér taka málstað hans, vera málsvarar Guðs? |
|
| 9 |
|
| Getur farið vel er hann yfirheyrir yður eða getið þér blekkt hann eins og maður blekkir mann? |
|
| 10 |
|
| Hann mundi ávíta yður harðlega væruð þér hlutdrægir á laun. |
|
| 11 |
|
| Mun hátign hans ekki skelfa yður, ótti við hann ekki yfirþyrma yður? |
|
| 12 |
|
| Átölur yðar eru aska, svör yðar leir. |
|
| 13 |
|
| Þagnið nú því að ég ætla að tala og komi svo yfir mig hvað sem verða vill. |
|
| 14 |
|
| Ég stofna sjálfum mér í hættu og legg líf mitt undir. |
|
| 15 |
|
| Hann sviptir mig lífi, ég vænti einskis, vil aðeins réttlæta breytni mína frammi fyrir honum. |
|
| 16 |
|
| Það getur orðið mér til bjargar því að enginn óguðlegur kemur fyrir auglit hans. |
|
| 17 |
|
| Hlustið nú vel á ræðu mína, leggið hlustir við málflutningi mínum. |
|
| 18 |
|
| Nú legg ég mál mitt fyrir, ég veit að ég hef á réttu að standa. |
|
| 19 |
|
| Gæti nokkur ákært mig vildi ég þagna og deyja. |
|
| 20 |
|
| Hlífðu mér aðeins við þessu tvennu, þá þyrfti ég ekki að dyljast fyrir þér: |
|
| 21 |
|
| Léttu hendi þinni af mér og óttinn við þig skelfi mig ekki. |
|
| 22 |
|
| Kallaðu mig fyrir og ég mun svara en ef ég tala svarar þú. |
|
| 23 |
|
| Hve margar eru misgjörðir mínar og syndir? Gerðu mér grein fyrir afbroti mínu og synd. |
|
| 24 |
|
| Hvers vegna hylur þú auglit þitt og lítur á mig sem óvin þinn? |
|
| 25 |
|
| Ætlarðu að skelfa skrælnað laufblað, ofsækja visinn reyr |
|
| 26 |
|
| þar sem þú gerir mér bitra kosti og lætur mig gjalda æskusynda minna? |
|
| 27 |
|
| Þú leggur fætur mína í stokk, gefur gætur að vegum mínum og markar hvert fótspor mitt. |
|
| 28 |
|
| Maðurinn grotnar eins og maðksmoginn viður, eins og mölétin flík. |
|
|
|
|