×

Biblían 2007

JOBSBÓK 16

1
Job svaraði og sagði:
2
Ég hef heyrt margt þessu líkt, þér eruð þreytandi huggarar, allir sem einn.
3
Er þessu orðagjálfri nú lokið eða hvað egnir þig til svara?
4
Ég gæti einnig talað eins og þér stæðuð þér í mínum sporum, gæti sett saman ræðu gegn yður og hrist höfuðið yfir yður.
5
Ég gæti stutt yður með munni mínum og ekki sparað samúð með vörum mínum.
6
Þótt ég tali deyfir það ekki kvöl mína, þótt ég þegi hverfa ekki þjáningar mínar.
7
Já, nú hefur hann þreytt mig. Þú eyddir öllu sem vitnaði gegn mér, þrengdir að mér.
8
Hrörnun mín varð vitni, reis gegn mér og talaði móti mér.
9
Heift hans reif mig og ofsótti, gnísti tönnum gegn mér. Fjandmenn mínir hvesstu á mig augun,
10
glenntu upp ginið á móti mér, gáfu mér utan undir til háðungar og flykktust gegn mér.
11
Guð ofurseldi mig illmenni og hratt mér í greipar guðleysingja.
12
Ég var áhyggjulaus en hann hristi mig óþyrmilega, tók í hnakkadrambið á mér og muldi mig. Hann hafði mig að skotspæni,
13
örvar hans dreif að mér úr öllum áttum, hann klauf nýru mín og eirði engu, lét gallið úr mér renna á jörðina.
14
Hann brýtur í mig skarð eftir skarð, gerir áhlaup á mig eins og hermaður.
15
Ég saumaði húð minni sorgarklæði, stakk horni mínu ofan í moldina.
16
Andlit mitt er þrútið af gráti og dökkir baugar undir augunum,
17
þótt hendur mínar hafi ekki flekkast af ofbeldi og bæn mín sé hrein.
18
Jörð, hyl eigi blóð mitt og neyðaróp mitt fái engan hvíldarstað.
19
En á himnum er vottur minn og vitni mitt á hæðum.
20
Vinir mínir hæða mig, auga mitt grætur frammi fyrir Guði,
21
hann skeri úr deilum milli manns og Guðs og manna á meðal
22
því að fá ár munu líða uns ég fer þá för sem enginn á afturkvæmt úr.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar