Biblían 2007
|
| 1 |
| Job svaraði og sagði: |
| 2 |
| Enn í dag mótmæli ég með kveinstöfum mínum, hönd Guðs hvílir þungt á mér og ég andvarpa. |
| 3 |
| Ég vildi að ég vissi hvar hann er að finna og gæti komist til bústaðar hans. |
| 4 |
| Ég ætla að leggja fyrir hann mál með munninn fullan af röksemdum. |
| 5 |
| Ég vil fá að vita hverju hann svarar mér og skilja hvað hann segir við mig. |
| 6 |
| Mundi hann deila við mig í krafti valds síns? Nei, hann mundi gefa mér gaum. |
| 7 |
| Þar mundi hreinskilinn maður rökræða við hann og ég mundi losna endanlega við dómara minn. |
| 8 |
| Gangi ég áfram, er hann ekki þar eða aftur á bak, verð ég hans ekki var. |
| 9 |
| Sé hann vinstra megin við mig verð ég hans ekki var og snúi hann til hægri sé ég hann ekki. |
| 10 |
| Hann þekkir veginn sem ég geng. Prófi hann mig reynist ég sem gull. |
| 11 |
| Fótur minn þræddi spor hans og fylgdi vegi hans án þess að víkja, |
| 12 |
| boðum af vörum hans án þess að hvika, í brjósti mér varðveitti ég orðin úr munni hans. |
| 13 |
| En ákvarði hann, hver hindrar hann? Hann gerir það sem hann vill, |
| 14 |
| lætur það verða sem hann hefur ætlað mér og hefur margt svipað í huga. |
| 15 |
| Þess vegna skelfist ég fyrir augliti hans. Þegar ég íhuga þetta óttast ég hann. |
| 16 |
| Guð hefur gert mig hugdeigan, Hinn almáttki hefur skotið mér skelk í bringu. |
| 17 |
| En ég er ekki yfirbugaður af myrkri þótt skuggi hylji andlit mitt. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/job/023.mp3
42
23