Biblían 2007
|
| 1 |
| Job svaraði og sagði: |
| 2 |
| Sannarlega styrkir þú hinn þróttlausa og styður máttvana arm. |
| 3 |
| Þú gefur fávísum holl ráð og veitir honum djúpan skilning. |
| 4 |
| Með fulltingi hvers hefur þú talað, hvers er andinn sem frá þér kemur? |
| 5 |
| Andar framliðinna skjálfa hið neðra, undir hafdjúpinu, og þeir sem þar búa. |
| 6 |
| Ríki dauðra er berskjaldað fyrir Guði og ekkert hylur undirheima |
| 7 |
| fyrir honum sem þenur norðrið yfir tómið og lætur jörðina svífa í geimnum. |
| 8 |
| Hann bindur vatn í skýjum sínum og skýin bresta ekki undan því, |
| 9 |
| hann hylur auglit tungls í fyllingu og breiðir skýflóka sína fyrir það. |
| 10 |
| Hann dró mörk á hafflötinn þar sem ljós og myrkur mætast. |
| 11 |
| Súlur himins skulfu og skelfdust ógnun hans. |
| 12 |
| Með mætti sínum lægði hann hafið, með visku sinni molaði hann Rahab. |
| 13 |
| Fyrir andgusti hans varð himinninn heiður, með hendi sinni lagði hann hraðfleygan drekann í gegn. |
| 14 |
| Þetta eru ystu mörk verka hans, það sem vér heyrum um hann er hvískur en hver fær skilið þrumu máttar hans? |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/job/026.mp3
42
26