|
| 1 |
|
| Að sönnu á silfrið upptökustað og gullið, sem menn hreinsa, fundarstað. |
|
| 2 |
|
| Járn er tekið úr jörðu, og steinn er bræddur að eiri. |
|
| 3 |
|
| Maðurinn hefir gjört enda á myrkrinu, og til ystu takmarka rannsakar hann steinana, sem faldir eru í kolniðamyrkri. |
|
| 4 |
|
| Hann brýtur námugöng fjarri þeim, sem í dagsbirtunni búa, gleymdur mannafótum, fjarlægur mönnum hangir hann, svífur hann. |
|
| 5 |
|
| Upp úr jörðinni sprettur brauð, en niðri í henni er öllu umturnað eins og af eldi. |
|
| 6 |
|
| Safírinn finnst í grjóti jarðarinnar, og gullkorn fær sá er grefur. |
|
| 7 |
|
| Örninn þekkir eigi veginn þangað, og valsaugað sér hann ekki, |
|
| 8 |
|
| hin drembnu rándýr ganga hann eigi, ekkert ljón fer hann. |
|
| 9 |
|
| Á tinnusteinana leggur maðurinn hönd sína, umturnar fjöllunum frá rótum. |
|
| 10 |
|
| Hann heggur göng í björgin, og auga hans sér alls konar dýrindi. |
|
| 11 |
|
| Hann bindur fyrir vatnsæðarnar, til þess að þær tárist ekki, og leiðir leynda hluti fram í dagsbirtuna. |
|
| 12 |
|
| En spekin, hvar er hana að finna, og hvar á viskan heima? |
|
| 13 |
|
| Enginn maður þekkir veginn til hennar, og hana er ekki að finna á landi lifenda. |
|
| 14 |
|
| Undirdjúpið segir: “Í mér er hún ekki!” og hafið segir: “Ekki er hún hjá mér!” |
|
| 15 |
|
| Hún fæst ekki fyrir skíragull, og ekki verður silfur reitt sem andvirði hennar. |
|
| 16 |
|
| Eigi verður hún Ófírgulli goldin né dýrum sjóam- og safírsteinum. |
|
| 17 |
|
| Gull og gler kemst ekki til jafns við hana, og hún fæst ekki í skiptum fyrir ker af skíragulli. |
|
| 18 |
|
| Kóralla og krystalla er ekki að nefna, og að eiga spekina er meira um vert en perlur. |
|
| 19 |
|
| Tópasar Blálands komast ekki til jafns við hana, hún verður ekki goldin með hreinasta gulli. |
|
| 20 |
|
| Já spekin, hvaðan kemur hún, og hvar á viskan heima? |
|
| 21 |
|
| Hún er falin augum allra þeirra er lifa, og fuglum loftsins er hún hulin. |
|
| 22 |
|
| Undirdjúpin og dauðinn segja: “Með eyrum vorum höfum vér heyrt hennar getið.” |
|
| 23 |
|
| Guð veit veginn til hennar, og hann þekkir heimkynni hennar. |
|
| 24 |
|
| Því að hann sér til endimarka jarðar, lítur allt, sem undir himninum er. |
|
| 25 |
|
| Þá er hann ákvað þunga vindarins og ákvarðaði takmörk vatnsins, |
|
| 26 |
|
| þá er hann setti regninu lög og veg eldingunum, |
|
| 27 |
|
| þá sá hann hana og kunngjörði hana, fékk henni stað og rannsakaði hana einnig. |
|
| 28 |
|
| Og við manninn sagði hann: “Sjá, að óttast Drottin - það er speki, og að forðast illt - það er viska.” |
|
|
|
|