|
| 1 |
|
| Job hélt áfram ræðu sinni og sagði: |
|
| 2 |
|
| Ég vildi að ég væri eins og áður fyrr þegar Guð verndaði mig, |
|
| 3 |
|
| þegar hann lét lampa sinn lýsa yfir höfði mér og ég gekk við ljós hans í myrkri. |
|
| 4 |
|
| Eins og þegar ég var á besta aldri, þegar Guð skýldi tjaldi mínu |
|
| 5 |
|
| og Hinn almáttki var enn með mér og börnin mín voru í kringum mig, |
|
| 6 |
|
| þegar ég þvoði fætur mína í mjólk og ólífuolían streymdi til mín úr klettunum. |
|
| 7 |
|
| Þegar ég gekk um hlið mitt til borgarinnar og settist í sæti mitt á torginu |
|
| 8 |
|
| drógu æskumenn sig í hlé þegar þeir sáu mig og öldungar risu á fætur og stóðu kyrrir, |
|
| 9 |
|
| höfðingjar gættu tungu sinnar og lögðu hönd á munn sér, |
|
| 10 |
|
| tignarmenn lækkuðu róminn og tunga þeirra loddi við góminn. |
|
| 11 |
|
| Sá sem hlustaði á mig lofaði mig, hver sem sá mig hældi mér |
|
| 12 |
|
| því að ég bjargaði snauðum sem hrópaði á hjálp og munaðarlausum sem enginn liðsinnti. |
|
| 13 |
|
| Sá sem var hætt kominn blessaði mig og ég fyllti hjarta ekkjunnar fögnuði. |
|
| 14 |
|
| Ég klæddist réttlæti, ráðvendni mín fór mér vel eins og kápa og vefjarhöttur. |
|
| 15 |
|
| Ég varð blindum augu og lömuðum fætur. |
|
| 16 |
|
| Ég varð snauðum faðir, kannaði deilur mér óþekktra manna, |
|
| 17 |
|
| braut kjálka illmennis og reif bráðina úr tönnum þess. |
|
| 18 |
|
| Ég sagði: „Ég mun farast í hreiðri mínu og lifa lengi eins og fuglinn Fönix. |
|
| 19 |
|
| Rót mín nær til vatns og limið er döggvað um nætur. |
|
| 20 |
|
| Æran endurnýjast mér sífellt og boginn yngist í hendi mér.“ |
|
| 21 |
|
| Menn hlustuðu á mig og biðu og hlýddu þegjandi á ráð mitt. |
|
| 22 |
|
| Þegar ég hafði talað tók enginn til máls, orð mín drupu á þá, |
|
| 23 |
|
| þeir biðu mín eins og regns, opnuðu munninn og vonuðust eftir vorskúr. |
|
| 24 |
|
| Brosti ég við þeim fengu þeir kjark, ef andlit mitt ljómaði voru þeir ekki lengur niðurlútir. |
|
| 25 |
|
| Ég ákvað þeim leið, sat í höfðingjasætinu, dvaldist sem konungur meðal hersveitanna, eins og sá sem huggar sorgmædda. |
|
|
|
|