|
| 1 |
|
| Og Elíhú tók aftur til máls og sagði: |
|
| 2 |
|
| Heyrið, þér vitrir menn, orð mín, og þér fróðir menn, hlustið á mig. |
|
| 3 |
|
| Því að eyrað prófar orðin, eins og gómurinn smakkar matinn. |
|
| 4 |
|
| Vér skulum rannsaka, hvað rétt er, komast að því hver með öðrum, hvað gott er. |
|
| 5 |
|
| Því að Job hefir sagt: “Ég er saklaus, en Guð hefir svipt mig rétti mínum. |
|
| 6 |
|
| Þótt ég hafi rétt fyrir mér, stend ég sem lygari, banvæn ör hefir hitt mig, þótt ég hafi í engu brotið.” |
|
| 7 |
|
| Hvaða maður er eins og Job, sem drekkur guðlast eins og vatn |
|
| 8 |
|
| og gefur sig í félagsskap við þá, sem illt fremja, og er í fylgi við óguðlega menn? |
|
| 9 |
|
| Því að hann hefir sagt: “Maðurinn hefir ekkert gagn af því að vera í vinfengi við Guð.” |
|
| 10 |
|
| Fyrir því, skynsamir menn, heyrið mig! Fjarri fer því, að Guð aðhafist illt og hinn Almáttki fremji ranglæti. |
|
| 11 |
|
| Nei, hann geldur manninum verk hans og lætur manninum farnast eftir breytni hans. |
|
| 12 |
|
| Já, vissulega fremur Guð ekki ranglæti, og hinn Almáttki hallar ekki réttinum. |
|
| 13 |
|
| Hver hefir fengið honum jörðina til varðveislu, og hver hefir grundvallað allan heiminn? |
|
| 14 |
|
| Ef hann hugsaði aðeins um sjálfan sig, ef hann drægi til sín anda sinn og andardrátt, |
|
| 15 |
|
| þá mundi allt hold gefa upp andann og maðurinn aftur verða að dufti. |
|
| 16 |
|
| Hafir þú vit, þá heyr þú þetta, hlusta þú á hljóm orða minna. |
|
| 17 |
|
| Getur sá stjórnað, sem hatar réttinn? Eða vilt þú dæma hinn réttláta, volduga? |
|
| 18 |
|
| þann sem segir við konunginn: “Þú varmenni!” við tignarmanninn: “Þú níðingur!” |
|
| 19 |
|
| sem ekki dregur taum höfðingjanna og gjörir ekki ríkum hærra undir höfði en fátækum, því að handaverk hans eru þeir allir. |
|
| 20 |
|
| Skyndilega deyja þeir, og það um miðja nótt, fólkið verður skelkað, og þeir hverfa, og hinn sterki er hrifinn burt, en eigi af manns hendi. |
|
| 21 |
|
| Því að augu Guðs hvíla yfir vegum hvers manns, og hann sér öll spor hans. |
|
| 22 |
|
| Ekkert það myrkur er til eða sú niðdimma, að illgjörðamenn geti falið sig þar. |
|
| 23 |
|
| Því að Guð þarf ekki fyrst að gefa manni gaum, til þess að hann komi fyrir dóm hans. |
|
| 24 |
|
| Hann brýtur hina voldugu sundur rannsóknarlaust og setur aðra í þeirra stað. |
|
| 25 |
|
| Þannig þekkir hann verk þeirra og steypir þeim um nótt, og þeir verða marðir sundur. |
|
| 26 |
|
| Hann hirtir þá sem misgjörðamenn í augsýn allra manna, |
|
| 27 |
|
| vegna þess að þeir hafa frá honum vikið og vanrækt alla vegu hans |
|
| 28 |
|
| og látið kvein hins fátæka berast til hans, en hann heyrði kvein hinna voluðu. |
|
| 29 |
|
| Haldi hann kyrru fyrir, hver vill þá sakfella hann? og byrgi hann auglitið, hver fær þá séð hann? Þó vakir hann yfir þjóð og einstaklingi, |
|
| 30 |
|
| til þess að guðlausir menn skuli ekki drottna, til þess að þeir séu ekki snörur lýðsins. |
|
| 31 |
|
| Því að segir nokkur við Guð: “Mér hefir verið hegnt og breyti þó ekki illa. |
|
| 32 |
|
| Kenn þú mér það, sem ég sé ekki. Hafi ég framið ranglæti, skal ég eigi gjöra það framar”? |
|
| 33 |
|
| Á hann að endurgjalda eftir geðþótta þínum, af því að þú hafnar? því að þú átt að velja, en ekki ég. Og seg nú fram það, er þú veist! |
|
| 34 |
|
| Skynsamir menn munu segja við mig, og vitur maður, sem á mig hlýðir: |
|
| 35 |
|
| “Job talar ekki hyggilega, og orð hans eru ekki skynsamleg.” |
|
| 36 |
|
| Ó að Job mætti reyndur verða æ að nýju, af því að hann svarar eins og illir menn svara. |
|
| 37 |
|
| Því að hann bætir misgjörð ofan á synd sína, hann klappar saman höndunum framan í oss og heldur langar ræður móti Guði. |
|
|
|
|