|
| 1 |
|
| Elíhú tók enn til máls og sagði: |
|
| 2 |
|
| Andartak, ég ætla að segja þér dálítið, enn er margt ósagt um Guð. |
|
| 3 |
|
| Þekkingu mína ætla ég að draga langt að og sýna fram á réttlæti skapara míns. |
|
| 4 |
|
| Orð mín eru sannarlega engin lygi, hjá þér er sá sem býr yfir fullkominni þekkingu. |
|
| 5 |
|
| Guð er voldugur en fyrirlítur engan, hann er voldugur að mætti og speki. |
|
| 6 |
|
| Hann gefur ekki óguðlegum líf en lætur umkomulausa ná rétti sínum. |
|
| 7 |
|
| Hann hefur ekki augun af réttlátum en setur þá í hásæti með konungum, ævinlega, og þeir verða mikils metnir. |
|
| 8 |
|
| En hafi þeir verið lagðir í hlekki, reyrðir í reipi þjáningarinnar, |
|
| 9 |
|
| setur hann þeim verk þeirra fyrir sjónir og misgjörðir því að þeir hreyktu sér. |
|
| 10 |
|
| Hann opnar eyru þeirra og vandar um við þá, hvetur þá til að hverfa frá vonsku sinni. |
|
| 11 |
|
| Ef þeir hlýða og þjóna honum lýkur ævidögum þeirra í velsæld og árum þeirra í unaði. |
|
| 12 |
|
| En hlýði þeir ekki fara þeir yfir fljótið til undirheima og deyja í vanþekkingu. |
|
| 13 |
|
| Guðlausir í hjarta ala á heift, þeir hrópa ekki á hjálp þegar hann fjötrar þá. |
|
| 14 |
|
| Ævi þeirra lýkur í æskublóma og lífi þeirra lýkur meðal hórsveina. |
|
| 15 |
|
| Guð bjargar hinum þjáða með þjáningum hans, opnar eyra hans með áþján. |
|
| 16 |
|
| Þig dró hann einnig úr gini þjáninga, út á víðlendi þar sem engin þrenging er. Borð þitt er hlaðið feitmeti |
|
| 17 |
|
| en þú færð fylli þína af sama dómi og guðlausir, dómur og réttlæti halda þér í skefjum. |
|
| 18 |
|
| En gættu þín, láttu ekki ginnast af allsnægtum og ekki tælast af mútum. |
|
| 19 |
|
| Mun auður þinn leysa þig úr nauðum eða afl þitt reynt til fulls? |
|
| 20 |
|
| Þráðu ekki nóttina þegar þjóðir verða að halda frá byggðum sínum. |
|
| 21 |
|
| Gættu þín, snúðu þér ekki að illu því að þess vegna varstu reyndur með þjáningu. |
|
| 22 |
|
| Guð er upphafinn í mætti sínum, hver getur kennt eins og hann? |
|
| 23 |
|
| Hver getur vísað honum til vegar? Og hver getur sagt við hann: „Þú hefur breytt rangt.“ |
|
| 24 |
|
| Mundu að tigna verk hans sem menn syngja lof. |
|
| 25 |
|
| Allir menn horfa fagnandi á það, hinn dauðlegi sér það úr fjarska. |
|
| 26 |
|
| Guð er meiri en vér getum skilið, óteljandi eru ár hans. |
|
| 27 |
|
| Hann safnar saman vatnsdropum, þeir hreinsast og verða regn |
|
| 28 |
|
| sem streymir úr skýjunum og fellur yfir mannfjöldann. |
|
| 29 |
|
| Hver skilur rek skýjanna og þrumugnýinn frá bústað hans? |
|
| 30 |
|
| Hann breiðir um sig birtu sína og hylur botn hafsins. |
|
| 31 |
|
| Því að þannig dæmir hann þjóðirnar, gefur þeim gnægð matar. |
|
| 32 |
|
| Leiftrandi elding hylur lófa hans og skipun hans beinir henni í mark. |
|
| 33 |
|
| Þruma hennar segir frá honum og búféð boðar komu hans. |
|
|
|
|