|
| 1 |
|
| Þá svaraði Drottinn Job úr storminum og sagði: |
|
| 2 |
|
| Hver er sá sem hylur ráðsályktunina myrkri með innihaldslausum orðavaðli? |
|
| 3 |
|
| Gyrtu lendar þínar eins og manni sæmir, nú ætla ég að spyrja þig en þú skalt svara. |
|
| 4 |
|
| Hvar varstu þegar ég grundvallaði jörðina? Segðu það ef þú veist það og skilur. |
|
| 5 |
|
| Hver ákvað umfang hennar, veist þú það, eða hver þandi mælivað yfir henni? |
|
| 6 |
|
| Á hvað var sökklum hennar sökkt eða hver lagði hornstein hennar |
|
| 7 |
|
| þegar morgunstjörnurnar sungu saman gleðisöng og allir synir Guðs fögnuðu? |
|
| 8 |
|
| Hver byrgði hafið inni með hliðum þegar það braust fram úr móðurlífi |
|
| 9 |
|
| og ég fékk því klæðnað úr skýjum og reifaði það svartaþoku, |
|
| 10 |
|
| þegar ég ruddi því markaða braut, setti slagbranda fyrir og hlið |
|
| 11 |
|
| og sagði: „Hingað kemstu og ekki lengra, hér stöðvast hreyknar hrannir þínar.“ |
|
| 12 |
|
| Hvenær hefur þú kallað á morguninn, vísað aftureldingunni á sinn stað |
|
| 13 |
|
| svo að hún grípi í klæðafald jarðar og óguðlegir hristist af henni? |
|
| 14 |
|
| Hún breytist eins og leir undir innsigli og litast líkt og klæði. |
|
| 15 |
|
| Óguðlegir verða sviptir ljósi sínu og upplyftur armur þeirra brotinn. |
|
| 16 |
|
| Hefurðu komið að uppsprettum hafsins, gengið á botni frumdjúpsins? |
|
| 17 |
|
| Hafa hlið dauðans opinberast þér, hefurðu litið hlið myrkursins? |
|
| 18 |
|
| Hefurðu horft yfir víðáttur jarðar? Segðu frá þeim ef þú þekkir þær allar. |
|
| 19 |
|
| Hvar er leiðin til heimkynna ljóssins og hvar er bústaður myrkursins |
|
| 20 |
|
| svo að þú getir komið því á sinn stað og vísað því veginn heim? |
|
| 21 |
|
| Þetta veistu því að þá varstu fæddur og ævidagar þínir eru margir. |
|
| 22 |
|
| Hefurðu komið að forðabúri snævarins og séð geymslur haglsins |
|
| 23 |
|
| sem ég geymi til þrengingatíma, til orrustu- og ófriðardags? |
|
| 24 |
|
| Hvar er vegurinn þangað sem ljósinu er dreift og austanvindurinn tvístrast um jörðina? |
|
| 25 |
|
| Hver gerði göng fyrir regnskúrina og veg fyrir eldingarnar |
|
| 26 |
|
| svo að rignir yfir óbyggt land, yfir eyðimörkina þar sem enginn býr, |
|
| 27 |
|
| og mettar auðn og eyðilönd og lætur grængresi spretta? |
|
| 28 |
|
| Á regnið sér föður eða hver hefur getið daggardropana |
|
| 29 |
|
| og hver fæddi hrímið sem kemur af himni? |
|
| 30 |
|
| Vatnið stirðnar sem steinn og yfirborð djúpsins þéttist. |
|
| 31 |
|
| Hnýtir þú strengi Sjöstjörnunnar eða leysir þú fjötra Óríons? |
|
| 32 |
|
| Lætur þú stjörnumerkin koma í ljós á réttum tíma, leiðir fram ljónynjuna og hvolpa hennar? |
|
| 33 |
|
| Þekkir þú lög himinsins, ákveður þú vald hans á jörðinni? |
|
| 34 |
|
| Hefur þú rödd þína upp til skýja svo að vatnsflaumur hylji þig? |
|
| 35 |
|
| Sendirðu eldingar frá þér svo að þær þjóta af stað og segja við þig: „Hér erum vér“? |
|
| 36 |
|
| Hver veitti íbisfuglinum speki, hver gaf hananum skilning? |
|
| 37 |
|
| Hver telur skýin af þekkingu og hver hellir úr vatnskerum himins |
|
| 38 |
|
| þegar moldin verður að kekkjum og hnausarnir loða saman? |
|
| 39 |
|
| Veiðir þú bráð handa ljónynjunni? Seður þú hungur ljónshvolpanna |
|
| 40 |
|
| þegar þeir kúra í bæli sínu og liggja í leyni í runnanum? |
|
| 41 |
|
| Hver færir hrafninum bráð þegar ungar hans hrópa til Guðs, flögra fram og aftur án ætis? |
|
|
: |
| 1 | | 2 | | 3 | | 4 | | 5 | | 6 | | 7 | | 8 | | 9 | | 10 | | 11 | | 12 | | 13 | | 14 | | 15 | | 16 | | 17 | | 18 | | 19 | | 20 | | 21 | | 22 | | 23 | | 24 | | 25 | | 26 | | 27 | | 28 | | 29 | | 30 | | 31 | | 32 | | 33 | | 34 | | 35 | | 36 | | 37 | | 38 | | 39 | | 40 | | 41 | 1
1
1 |
|
|---|
|
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/job/038.mp3
42
38