|
| 1 |
|
| Veistu hvenær steingeitur bera, fylgistu með fæðingarhríðum hinda? |
|
| 2 |
|
| Telurðu mánuðina sem þær ganga með og veistu hvenær þær bera? |
|
| 3 |
|
| Þær hnipra sig saman, bera kálfum sínum og losna við hríðarnar. |
|
| 4 |
|
| Kálfarnir styrkjast og dafna í haganum, hlaupa burt og koma ekki aftur til þeirra. |
|
| 5 |
|
| Hver sleppti villiasnanum lausum og hver leysti fjötra sléttuasnans? |
|
| 6 |
|
| Ég gerði auðnina að heimkynnum hans og saltsléttuna að bústað hans. |
|
| 7 |
|
| Hann hlær að skarkala borgarinnar og heyrir ekki köll smalanna, |
|
| 8 |
|
| hann leitar haga í fjöllunum, sækir í allt grænt. |
|
| 9 |
|
| Vill villinautið þræla fyrir þig, stendur það næturlangt við jötu þína? |
|
| 10 |
|
| Geturðu bundið villinautið í plógfarinu með reipum, plægir það dalgrundirnar á eftir þér? |
|
| 11 |
|
| Treystirðu því af því að afl þess er mikið og lætur það erfiða fyrir þig? |
|
| 12 |
|
| Treystirðu því til að flytja korn þitt og safna því á þreskivöll þinn? |
|
| 13 |
|
| Vængjablak strútshænunnar er skoplegt, verður vængjum hennar líkt við flugfjaðrir storks og fálka? |
|
| 14 |
|
| Þegar hún skilur egg sín eftir á jörðinni svo að þau haldist heit í sandinum |
|
| 15 |
|
| gleymir hún að fótur getur kramið þau og villidýr troðið þau í sundur. |
|
| 16 |
|
| Hún beitir unga sína hörðu eins og hún ætti þá ekki. Þótt erfiði hennar sé til einskis stendur henni á sama |
|
| 17 |
|
| því að Guð synjaði henni um skynsemi og veitti henni enga hlutdeild í skilningi. |
|
| 18 |
|
| En þegar hún stekkur upp, baðar vængjum, hlær hún að hesti og riddara. |
|
| 19 |
|
| Gafstu hestinum afl, klæddirðu makka hans faxi, |
|
| 20 |
|
| læturðu hann stökkva eins og engisprettu? Tignarlegt hnegg hans er ógnvekjandi. |
|
| 21 |
|
| Hann krafsar upp grundina og gleðst, sterkur veður hann gegn vopnum, |
|
| 22 |
|
| hlær að hræðslu, óttast ekkert og hopar ekki fyrir sverði. |
|
| 23 |
|
| Á baki hans glamrar í örvamæli, spjót og bjúgsverð leiftra, |
|
| 24 |
|
| með hávaða og harki þýtur hann yfir landið, stansar ekki við hornaþyt. |
|
| 25 |
|
| Hann hneggjar þegar horn er þeytt, hefur veður af bardaga langt að, köllum liðsforingja og herópum. |
|
| 26 |
|
| Er það fyrir þína visku sem fálkinn flýgur upp og þenur vængina til suðurs? |
|
| 27 |
|
| Hefur örninn sig til flugs eftir þinni skipun og gerir sér hreiður hátt uppi? |
|
| 28 |
|
| Hann býr í björgum og náttar þar á klettagnípum og fjallatindum, |
|
| 29 |
|
| þaðan skyggnist hann eftir bráð, augu hans horfa langt í fjarska. |
|
| 30 |
|
| Unga hans þyrstir í blóð og þar sem fallnir liggja er hann kominn. |
|
|
|
|