Biblían 2007
|
| 1 |
| Elífas frá Teman svaraði og sagði: |
| 2 |
| Mislíkar þér að reynt sé að tala við þig? Hver fær samt orða bundist? |
| 3 |
| Þú hefur leiðbeint mörgum, magnþrota hendur hefur þú styrkt. |
| 4 |
| Orð þín reistu á fætur þann sem hrasaði, þú studdir þau hné sem létu undan. |
| 5 |
| Nú hendir það þig og þú missir móðinn, það snertir þig og þú kiknar. |
| 6 |
| Áttu ekki athvarf í guðhræðslunni, er flekklaus vegur þinn ekki von þín? |
| 7 |
| Hugleiddu hvort saklausum hafi verið grandað, hvar réttlátum hafi verið eytt. |
| 8 |
| Það hef ég séð. Þeir sem plægðu illsku og sáðu böli hafa uppskorið samkvæmt því, |
| 9 |
| þeir hurfu fyrir andgusti Guðs, fyrir reiðiblæstri hans urðu þeir að engu. |
| 10 |
| Ljónið öskrar og hvolpur þess urrar en ljónstennurnar verða brotnar. |
| 11 |
| Ljónið deyr ef það skortir bráð og hvolpar ljónynjunnar tvístrast. |
| 12 |
| En til mín laumaðist orð, eyra mitt heyrði hvíslað, |
| 13 |
| í hugrenningum út frá draumsýn um nótt þegar svefnhöfgi leggst á menn. |
| 14 |
| Skelfing greip mig og skjálfti svo að öll bein mín nötruðu |
| 15 |
| og vindgustur straukst um andlit mitt, hárin risu á líkama mínum. |
| 16 |
| Einhver stóð þarna, ég greindi ekki útlit hans, einhver vera var fyrir augum mér og ég heyrði hvíslandi rödd: |
| 17 |
| „Hefur dauðlegur maður rétt fyrir sér gagnvart Guði, er nokkur hreinn frammi fyrir þeim sem skapaði hann? |
| 18 |
| Sjá, hann getur ekki treyst þjónum sínum og finnur afglöp hjá englum sínum, |
| 19 |
| hvað þá hjá þeim sem búa í leirhúsum sem grundvölluð eru á sandi. Þeir verða marðir sundur sem mölur, |
| 20 |
| slegnir frá morgni til kvölds, þeir munu hverfa um aldur og ævi og enginn tekur eftir því. |
| 21 |
| Verður tjaldstagi þeirra ekki kippt upp? Þeir munu deyja skilningsvana.“ |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/job/004.mp3
42
4