|
| 1 |
|
| Drottinn mælti til Jobs og sagði: |
|
| 2 |
|
| Ætlar ámælismaðurinn að deila við Hinn almáttka? Sá sem ásakar Guð svari þessu. |
|
| 3 |
|
| Job svaraði Drottni og sagði: |
|
| 4 |
|
| Nei, ég er léttvægur, hverju get ég svarað þér? Ég legg hönd mér á munn. |
|
| 5 |
|
| Einu sinni hef ég talað og svara ekki, tvisvar og endurtek það ekki. |
|
| 6 |
|
| Drottinn svaraði Job úr storminum og sagði: |
|
| 7 |
|
| Gyrtu nú lendar þínar eins og maður. Nú ætla ég að spyrja þig, þú skalt svara mér. |
|
| 8 |
|
| Ætlarðu að hafa dóm minn að engu, dæma mig sekan svo að þú verðir réttlættur? |
|
| 9 |
|
| Er armur þinn eins og armur Guðs, geturðu þrumað með sömu raust og hann? |
|
| 10 |
|
| Skrýddu þig nú hátign og mætti og klæðstu dýrð og ljóma, |
|
| 11 |
|
| helltu úr skálum reiði þinnar, líttu á hrokagikkinn og niðurlægðu hann, |
|
| 12 |
|
| líttu á hrokagikkinn og auðmýktu hann, traðkaðu óguðlega niður hvar sem þeir eru, |
|
| 13 |
|
| hyl þá mold, alla sem einn, lokaðu þá inni á leyndum stað |
|
| 14 |
|
| og ég skal lofa þig. |
|
| 15 |
|
| Líttu á flóðhestinn sem ég skapaði eins og þig, hann bítur gras eins og naut. |
|
| 16 |
|
| Sjáðu aflið í lendum hans og kraftinn í kviðvöðvum hans. |
|
| 17 |
|
| Hann sperrir halann eins og sedrustré, sinarnar í lærum hans eru samantvinnaðar, |
|
| 18 |
|
| beinin eru eirpípur, leggirnir járnstengur. |
|
| 19 |
|
| Hann er frumsköpun Guðs, skapari hans einn getur nálgast hann með sverði |
|
| 20 |
|
| en fjöllin færa honum afrakstur sinn og þar eru villtu dýrin að leik. |
|
| 21 |
|
| Hann liggur undir lótusrunnum, falinn í sefi og mýrarkeldum, |
|
| 22 |
|
| lótusrunnar hylja hann skugga, pílviðir á árbakka umlykja hann. |
|
| 23 |
|
| Hann hrökklast ekki burt þótt fljótið vaxi, hann er óhultur þegar Jórdan flæðir í gin hans. |
|
| 24 |
|
| Hver getur blindað hann og fangað, sett króka í nasir hans? |
|
| 25 |
|
| Geturðu veitt krókódílinn á öngul, þrýst niður tungu hans með færi, |
|
| 26 |
|
| dregið sefreipi gegnum nasir hans og stungið krók gegnum kjálka hans? |
|
| 27 |
|
| Sárbænir hann þig um miskunn eða talar hann vinsamlega til þín? |
|
| 28 |
|
| Gerir hann samning við þig um að þú gerir hann að þræli þínum ævinlega? |
|
| 29 |
|
| Leikurðu við hann eins og smáfugl, bindur hann fastan handa stúlkubörnum þínum? |
|
| 30 |
|
| Þjarka stórkaupmenn um hann og skipta honum meðal smásala? |
|
| 31 |
|
| Geturðu þakið húð hans skutlum, haus hans kastspjótum? |
|
| 32 |
|
| Leggðu lófa þinn á hann, settu þér bardagann fyrir sjónir, þú gerir það ekki aftur. |
|
|
: |
| 1 | | 2 | | 3 | | 4 | | 5 | | 6 | | 7 | | 8 | | 9 | | 10 | | 11 | | 12 | | 13 | | 14 | | 15 | | 16 | | 17 | | 18 | | 19 | | 20 | | 21 | | 22 | | 23 | | 24 | | 25 | | 26 | | 27 | | 28 | | 29 | | 30 | | 31 | | 32 | 1
1
1 |
|
|---|
|
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/job/040.mp3
42
40