Biblían 2007
|
| 1 |
| Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði: |
| 2 |
| Hversu lengi ætlar þú að tala þannig? Orðin í munni þínum eru hvassviðri. |
| 3 |
| Hallar Guð réttinum eða hallar Hinn almáttki réttlætinu? |
| 4 |
| Hafi börn þín syndgað gegn honum ofurseldi hann þau eigin misgjörðum. |
| 5 |
| Hafir þú sjálfur gert það skaltu leita Guðs og biðja Hinn almáttka miskunnar. |
| 6 |
| Sértu hreinn og beinn mun hann vakna til að sinna þér og endurreisa bústað þinn eins og þú verðskuldar. |
| 7 |
| Þá verður fortíð þín léttvæg en framtíð þín glæst. |
| 8 |
| Spyrðu fyrri kynslóðir og gefðu gaum að reynslu feðranna |
| 9 |
| því að vér erum frá því í gær og vitum ekkert og dagar vorir á jörðinni eru skuggi. |
| 10 |
| Munu þeir ekki fræða þig, segja þér frá og flytja boðskap úr hugarheimi sínum? |
| 11 |
| „Vex papýrussef nema í mýri, sprettur stör án vatns? |
| 12 |
| Óslegið og í blóma skrælnar það á undan öðru grasi.“ |
| 13 |
| Þannig fer fyrir öllum sem gleyma Guði og von guðleysingjans verður að engu. |
| 14 |
| Hann treystir veikum þráðum, reiðir sig á köngurlóarvef. |
| 15 |
| Hann styður sig við hús sitt en það stendur ekki, grípur í það en það lætur undan. |
| 16 |
| Hann er safarík jurt í sólskini og rótarskotin teygja sig um garðinn. |
| 17 |
| Rætur hans fléttast um grjótið og festast milli steina. |
| 18 |
| Verði hann upprættur af stað sínum hafnar staðurinn honum og segir: „Ég hef aldrei séð þig áður.“ |
| 19 |
| Já, þannig rennur ævi hans út í sandinn en annar sprettur úr moldinni. |
| 20 |
| Nei, Guð hafnar aldrei hinum vammlausa, styrkir ekki hönd illvirkjans. |
| 21 |
| Einhvern tíma fyllir hann munn þinn hlátri og varir þínar gleðihrópum. |
| 22 |
| Hatursmenn þínir hyljast smán og tjald guðleysingja stendur ekki lengur. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/job/008.mp3
42
8