|
| 1 |
|
| Job svaraði og sagði: |
|
| 2 |
|
| Víst vissi ég að þessu er þannig farið því að hvernig getur maðurinn haft rétt fyrir sér gagnvart Guði? |
|
| 3 |
|
| Vilji hann deila við Guð getur hann ekki svarað einni spurningu af þúsund. |
|
| 4 |
|
| Guð er vitur í hjarta og mikill að mætti, hver hefur boðið honum birginn án þess að saka? |
|
| 5 |
|
| Hann flytur fjöll þeim að óvörum, hann umturnar þeim í reiði sinni, |
|
| 6 |
|
| hann hrærir jörðina úr stað svo að stoðir hennar nötra, |
|
| 7 |
|
| hann skipar sólinni fyrir og hún kemur ekki upp og hann innsiglar stjörnurnar, |
|
| 8 |
|
| hann einn þandi himininn út og gengur á ölduföldum hafsins, |
|
| 9 |
|
| hann skóp Karlsvagninn og Óríon, Sjöstjörnuna og stjörnumerkin í suðri. |
|
| 10 |
|
| Hann vinnur stórvirki sem ekki verða könnuð og kraftaverk sem ekki verða talin. |
|
| 11 |
|
| Gangi hann fram hjá mér sé ég hann ekki, fari hann hjá verð ég hans ekki var. |
|
| 12 |
|
| Hann hrifsar burt, hver hindrar hann? Hver getur spurt hann: „Hvað ertu að gera?“ |
|
| 13 |
|
| Guð hemur ekki reiði sína, þeir sem hjálpuðu Rahab beygðu sig undir hann. |
|
| 14 |
|
| Hvernig á ég að geta svarað honum, valið orð mín gegn honum? |
|
| 15 |
|
| Þó að ég hefði rétt fyrir mér gæti ég ekki svarað og yrði að biðja dómara minn miskunnar. |
|
| 16 |
|
| Mundi hann svara mér ef ég hrópaði? Ég held að hann legði ekki hlustir við hrópi mínu, |
|
| 17 |
|
| hann sem feykir mér í storminum og fjölgar sárum mínum að ástæðulausu. |
|
| 18 |
|
| Hann lætur mig ekki ná andanum en mettar mig beiskju. |
|
| 19 |
|
| Sé um kraft að ræða, er mátturinn hans, sé um rétt að ræða, hver vill þá stefna honum? |
|
| 20 |
|
| Hefði ég rétt fyrir mér sakfelldi mig munnur minn, væri ég saklaus kæmi hann sektinni á mig. |
|
| 21 |
|
| Ég er saklaus og mér er sama um líf mitt, ég met það einskis. |
|
| 22 |
|
| Allt ber að sama brunni, því segi ég: Saklausum og óguðlegum tortímir hann. |
|
| 23 |
|
| Þegar svipan deyðir óvænt hæðir hann angist hinna saklausu. |
|
| 24 |
|
| Falli land guðlausum í greipar byrgir hann augu dómaranna. Ef ekki hann, hver þá? |
|
| 25 |
|
| Ævidagar mínir geysast áfram eins og hraðboði, þeir þjóta hjá án þess að líta heill, |
|
| 26 |
|
| renna áfram eins og reyrbátur, líkt og örn sem steypir sér yfir bráð. |
|
| 27 |
|
| Ef ég hugsa: „Ég ætla að gleyma harmi mínum, breyta um svip og verða glaðlegur,“ |
|
| 28 |
|
| þá hryllir mig við þjáningum mínum, ég veit að þú sýknar mig ekki. |
|
| 29 |
|
| Ég er þegar sakfelldur, hvers vegna erfiða ég þá til einskis? |
|
| 30 |
|
| Þvægi ég mér úr snjó og hreinsaði hendur mínar með lút |
|
| 31 |
|
| mundir þú dýfa mér í díkið svo að klæðum mínum byði við mér. |
|
| 32 |
|
| Guð er ekki maður eins og ég, að ég geti svarað honum og við mæst fyrir rétti. |
|
| 33 |
|
| Enginn er til sem getur skorið úr málum vorum og lagt hönd sína yfir oss báða. |
|
| 34 |
|
| Ég vildi að hann létti af mér svipu sinni svo að óttinn við hann kvelji mig ekki framar. |
|
| 35 |
|
| Þá mun ég tala án þess að skelfast hann en eins og komið er fyrir mér get ég það ekki. |
|
|
|
|