Biblían 2007
|
| 1 |
| Davíðssálmur. Ég vil syngja um náð og rétt, lofsyngja þér, Drottinn. |
| 2 |
| Ég vil gefa gætur að vegi hins ráðvanda. Hvenær kemur þú til mín? Í grandvarleik hjartans vil ég ganga um í húsi mínu. |
| 3 |
| Ég vil ekki hafa illvirki fyrir augum, ég hata þá sem aðhafast illt og samneyti þeim ekki. |
| 4 |
| Svikult hjarta skal frá mér víkja, illmenni vil ég eigi þekkja. |
| 5 |
| Rægi einhver vin sinn á laun þagga ég niður í honum. Þann sem hefur þótta í augum og hroka í hjarta fæ ég ekki þolað. |
| 6 |
| Augu mín hvíla á hinum trúföstu í landinu, þeir fá að búa hjá mér; sá sem gengur veg hins ráðvanda mun fá að þjóna mér. |
| 7 |
| Enginn má hafast við í húsi mínu er svik fremur. Sá sem fer með lygar stenst ekki fyrir augum mínum. |
| 8 |
| Hvern morgun þagga ég niður í öllum óguðlegum í landinu og útrými úr borg Drottins öllum illgjörðamönnum. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/101.mp3
150
101