Biblían 2007
|
| 1 |
| Hallelúja. Sæll er sá sem óttast Drottin og gleðst yfir boðum hans. |
| 2 |
| Niðjar hans verða voldugir í landinu, ætt réttvísra mun blessun hljóta. |
| 3 |
| Nægtir og auðæfi eru í húsi hans og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu. |
| 4 |
| Réttvísum skín ljós í myrkri, mildum, miskunnsömum og réttlátum. |
| 5 |
| Vel farnast þeim sem lánar fúslega og annast málefni sín af réttvísi |
| 6 |
| því að hann mun aldrei haggast. Minning hins réttláta er ævarandi, |
| 7 |
| hann þarf ekki að kvíða ótíðindum, hjarta hans er stöðugt, hann treystir Drottni. |
| 8 |
| Hjarta hans er óhult, hann óttast ekki; skjótt fær hann að líta fall óvina sinna. |
| 9 |
| Hann hefur miðlað mildilega og gefið fátækum, réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu, horn hans er hafið upp með sæmd. |
| 10 |
| Hinn óguðlegi sér það og honum gremst, hann gnístir tönnum og ferst. Óskir óguðlegra rætast ekki. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/112.mp3
150
112