Biblían 1981
|
| 1 |
| Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss, heldur þínu nafni dýrðina sakir miskunnar þinnar og trúfesti. |
| 2 |
| Hví eiga heiðingjarnir að segja: “Hvar er Guð þeirra?” |
| 3 |
| En vor Guð er í himninum, allt sem honum þóknast, það gjörir hann. |
| 4 |
| Skurðgoð þeirra eru silfur og gull, handaverk manna. |
| 5 |
| Þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki, |
| 6 |
| þau hafa eyru, en heyra ekki, nef, en finna engan þef. |
| 7 |
| Þau hafa hendur, en þreifa ekki, fætur, en ganga ekki, þau tala eigi með barka sínum. |
| 8 |
| Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir er á þau treysta. |
| 9 |
| En Ísrael treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur. |
| 10 |
| Arons ætt treystir Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur. |
| 11 |
| Þeir sem óttast Drottin treysta Drottni, hann er hjálp þeirra og skjöldur. |
| 12 |
| Drottinn minnist vor, hann mun blessa, hann mun blessa Ísraels ætt, hann mun blessa Arons ætt, |
| 13 |
| hann mun blessa þá er óttast Drottin, yngri sem eldri. |
| 14 |
| Drottinn mun fjölga yður, sjálfum yður og börnum yðar. |
| 15 |
| Þér eruð blessaðir af Drottni, skapara himins og jarðar. |
| 16 |
| Himinninn er himinn Drottins, en jörðina hefir hann gefið mannanna börnum. |
| 17 |
| Eigi lofa andaðir menn Drottin, né heldur neinn sá, sem hniginn er í dauðaþögn, |
| 18 |
| en vér viljum lofa Drottin, héðan í frá og að eilífu. Halelúja. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/115.mp3
150
115