Biblían 1981
|
| 1 |
| Til söngstjórans. Davíðssálmur. |
| 2 |
| Hversu lengi, Drottinn, ætlar þú að gleyma mér með öllu? Hversu lengi ætlar þú að hylja auglit þitt fyrir mér? |
| 3 |
| Hversu lengi á ég að bera sút í sál, harm í hjarta dag frá degi? Hversu lengi á óvinur minn að hreykja sér upp yfir mig? |
| 4 |
| Lít til, svara mér, Drottinn, Guð minn, hýrga augu mín, að ég sofni ekki svefni dauðans, |
| 5 |
| að óvinur minn geti ekki sagt: “Ég hefi borið af honum!” að fjandmenn mínir geti ekki fagnað yfir því, að mér skriðni fótur. |
| 6 |
| Ég treysti á miskunn þína; hjarta mitt fagnar yfir hjálp þinni. Ég vil syngja fyrir Drottni, því að hann hefir gjört vel til mín. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/psalms/013.mp3
150
13