Biblían 2007
|
| 1 |
| Þakkið Drottni því að hann er góður, miskunn hans varir að eilífu. |
| 2 |
| Þakkið guði guðanna, miskunn hans varir að eilífu. |
| 3 |
| Þakkið Drottni drottnanna, miskunn hans varir að eilífu. |
| 4 |
| Hann einn vinnur máttarverk, miskunn hans varir að eilífu. |
| 5 |
| Hann gerði himininn af visku, miskunn hans varir að eilífu. |
| 6 |
| Hann breiddi út jörðina á vötnunum, miskunn hans varir að eilífu. |
| 7 |
| Hann skapaði stóru ljósin, miskunn hans varir að eilífu, |
| 8 |
| sólina til að ráða deginum, miskunn hans varir að eilífu, |
| 9 |
| tungl og stjörnur til að ráða nóttinni, miskunn hans varir að eilífu. |
| 10 |
| Hann laust Egypta og deyddi frumburði þeirra, miskunn hans varir að eilífu, |
| 11 |
| leiddi Ísrael burt frá þeim, miskunn hans varir að eilífu, |
| 12 |
| með sterkri hendi og útréttum armi, miskunn hans varir að eilífu. |
| 13 |
| Hann klauf Sefhafið, miskunn hans varir að eilífu, |
| 14 |
| og leiddi Ísrael í gegnum það, miskunn hans varir að eilífu. |
| 15 |
| Hann steypti faraó og her hans í Sefhafið, miskunn hans varir að eilífu. |
| 16 |
| Hann leiddi þjóð sína yfir auðnina, miskunn hans varir að eilífu, |
| 17 |
| sigraði mikla konunga, miskunn hans varir að eilífu, |
| 18 |
| felldi volduga konunga, miskunn hans varir að eilífu, |
| 19 |
| Síhon, konung Amoríta, miskunn hans varir að eilífu, |
| 20 |
| og Óg, konung í Basan, miskunn hans varir að eilífu. |
| 21 |
| Hann gaf þeim land þeirra að erfð, miskunn hans varir að eilífu, |
| 22 |
| erfðahlut handa Ísrael, þjóni sínum, miskunn hans varir að eilífu. |
| 23 |
| Hann minntist vor í lægingu vorri, miskunn hans varir að eilífu, |
| 24 |
| bjargaði oss frá fjandmönnum vorum, miskunn hans varir að eilífu. |
| 25 |
| Hann fæðir allt sem lifir, miskunn hans varir að eilífu. |
| 26 |
| Þakkið Guði himinsins, miskunn hans varir að eilífu. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/psalms/136.mp3
150
136