×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 14

1
Til söngstjórans. Davíðssálmur. Heimskinginn segir í hjarta sínu: „Enginn Guð.“ Ill og andstyggileg er breytni þeirra, enginn gerir það sem gott er.
2
Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs.
3
Allir hafa þeir vikið af leið, allir eru spilltir, enginn gerir það sem gott er, ekki neinn.
4
Skilja þeir þá ekkert, þessir illvirkjar? Þeir seðja sig á lýð mínum, eta hann sem brauð og ákalla ekki Drottin.
5
Síðan skjálfa þeir af hræðslu því að Guð er með réttlátum.
6
Þér gerið áform hins snauða að engu en Drottinn er honum athvarf.
7
Ó, að Ísrael berist hjálp frá Síon. Þegar Drottinn snýr við hag lýðs síns mun Jakob fagna, Ísrael gleðjast.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar