×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 142

1
Maskíl eftir Davíð þegar hann var í hellinum. Bæn.
2
Ég hrópa hátt til Drottins, hef rödd mína til Drottins og bið um miskunn.
3
Ég úthelli fyrir honum kvíða mínum, tjái honum neyð mína.
4
Þegar kjarkurinn bregst mér þekkir þú götu mína. Á veginn, sem ég geng, lögðu menn snörur fyrir mig.
5
Ég lít til hægri og skyggnist um en enginn kannast við mig. Mér er varnað sérhvers athvarfs, enginn spyr hvort ég sé á lífi.
6
Ég hrópa til þín, Drottinn, og segi: Þú ert hæli mitt, hlutskipti mitt á landi lifenda.
7
Gef gaum að kveini mínu því að ég er þjakaður mjög. Bjarga mér frá ofsækjendum mínum því að þeir eru sterkari en ég.
8
Leið mig út úr fangelsinu svo að ég geti lofað nafn þitt. Réttlátir hópast þá um mig því að þú reynist mér vel.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar